Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Síða 80
Þessum fyrra degi formlegrar dagskrár lauk með sameiginlegu borðhaldi á
Westin hótelinu, sem er skammt frá Hótel Holiday Inn Franklin Square sem
hýsti þátttakendur í ferðinni. Heiðursgestir voru sendiherrahjónin þau Elsa og
Einar Benediktsson og Birna og Pétur Gunnar. Án aðstoðar Einars og Péturs
Gunnars hefði dagskrá ferðarinnar aldrei orðið jafn áhugaverð og yfirgripsmikil
og raun bar vitni. Þeirra þáttur í undirbúningi ferðarinnar var ómetanlegur.
Síðari dagur formlegrar dagskrár hófst á lögmannsstofunni Baker & Hostetler
sem er meðal elstu og stærstu lögmannsstofa í Bandaríkjunum. Stofan var
stofnuð árið 1916 af Newton D. Baker, Joseph C. Hostetlerog Thomas L. Sidlo.
Á skrifstofunni starfa yfir 500 lögfræðingar í átta borgum. Hópnum var skipt í
tvo fundarsali og var boðið upp á samfellda kynningardagskrá í tvær klukku-
stundir hjá hvorum hópi. Fr. Joanne W. Young bauð hópinn velkominn en síðan
kynntu samstarfsmenn hennar starfsemina en skrifstofan veitir þjónustu á
flestum sviðum lögfræðinnar. Kynningin var yfirgripsmikil og sérstaklega
áhugaverð og veitti góða innsýn inn í starfsemi lögmannsstofu í Banda-
ríkjunum. Tími var til umræðna og var um margt spurt, m.a. tímakaup
lögmanna. Húsakynni stofunnar í Washington eru hin glæsilegstu og jaðraði við
að sumir lögmennirnir í hópnum fylltust minnimáttarkennd. Fr. Young er
Islendingum að góðu kunn vegna starfa sinna fyrir ýmis íslensk fyrirtæki.
Lögmannsstofan bauð síðan til ljúffengs hádegisverðar á stofunni þar sem færi
gafst á óformlegra spjalli við lögfræðingana sem þarna starfa.
Að hádegisverði loknum var haldið í Capitol, þinghús Bandaríkjanna. Þar
hittum við fyrst Thurmond öldungardeildarþingmann fyrir Suður-Karolínu-
fylki. Hann var fyrst kosinn í öldungadeild bandaríska þingsins árið 1954. Kjör
hans þá var merkilegt fyrir þá sök að hann var kosinn með þeim hætti að
kjósendur rituðu nafn hans á kjörseðilinn. Var hann fyrstur til að hljóta
kosningu með þessari aðferð. Síðan hefur hann nánast óslitið verið öldungar-
deildarþingmaður. Hann var enn endurkjörinn til sex ára árið 1996 þá á 95.
aldursári, fæddur árið 1902. Hópurinn átti stuttan fund með þingmanninum á
tröppum skrifstofubyggingar við hlið þinghússins og var þar tekin hópmynd
með honum. Síðan fór aðstoðarmaður hans með hópinn í skoðunarferð um
þinghúsið. Bandaríska þinghúsið er glæsileg bygging með mörgum merki-
legum salarkynnum.
Þvínæst var stefnan tekin útúr miðborg Washington og haldið út í Virginíu-
fylki. Þar þáðum við veitingar í boði Katrínar og Haynie Trotter á glæsilegu
heimili þeirra í húsi sem þau kalla Skálholt. Eins og nafn hússins bendir til er
Katrín íslensk. Haynie Trotter er einn eigenda lögmannsstofunnar McGuire,
Woods, Battle & Boothe í Washington. Þar fékk hópurinn frábærar móttökur og
er einstakt að einstaklingar skuli með þessum hætti opna heimili sitt fyrir
jafnfjölmennum hópi og hér var á ferð.
Að loknu síðdegisboði var ekið að minnismerkjunum í Washington DC og
þau skoðuð í ljósaskiptunum.
Þar með var formlegri dagskrá ferðarinnar lokið. Þátttakendur eyddu laugar-
220