Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Síða 7

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Síða 7
Tímarit löqfræðinqa 1. hefti • 49. árgangur maí 1999 TVÍSKIPT RÍKISVALD? Svo sem kunnugt er byggist stjómskipan lýðræðisríkja í okkar heimshluta á kenningunni um þrískiptingu ríkisvaldsins í löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald. Þessi skipting er að vísu mismunandi skýr eftir ríkjum, skýmst er hún í Bandaríkjunum. Þar elda forsetinn, æðsti handhafi framkvæmdavaldsins, og löggjafarþingið oft grátt silfur saman. Nýjasta dæmi þess er þegar þingið reyndi að velta forsetanum úr sessi sem mörgum er í fersku minni. Þess ber hins vegar að gæta að í Bandaríkjunum gildir þingræðisreglan ekki því að forsetinn er kosinn beinni kosningu sem þinginu er óviðkomandi. Einnig má nefna að norskum ráðherrum er óheimilt að gegna þingstörfum samfara ráðherradómi. Það er eflaust að bera í bakkafullann lækinn að geta þess að Montesquieu hinn franski er talinn höfundur kenningarinnar um þrískiptingu ríkisvaldsins en rétt að taka fram að Montesquieu mun hafa sótt drjúgan efnivið til enska heim- spekingsins John Locke og er kenningin ekki verri fyrir það. Skoðun Montes- quieu var sú að væri allt ríkisvald á einni hendi skapaði það hættu á ofríki og kúgun þeirra sem undir ríkisvaldið væm seldir. Með því að skipta ríkisvaldinu á milli þriggja handhafa, sem veittu hver öðmm aðhald, fengist trygging gegn valdníðslu af hálfu ríkisins. Við Islendingar teljumst búa við þrískiptingu ríkisvaldsins og er hún væntan- lega eitt það fyrsta sem laganemar fræðast um þegar þeir taka að nema stjóm- skipunarréttinn. Svo er líka að sjá sem landsmönnum almennt sé þetta skipulag nokkuð vel kunnugt. I kennslubók í stjórnskipunarrétti er það réttilega kennt að í íslensku stjómarskránni sé vikið frá kenningum Montesquieu og þar virðist fyrst og fremst haft í huga að forsetinn er handhafi bæði löggjafarvalds og fram- kvæmdavalds. Þótt þetta sé formið skiptir það ekki höfuðmáli í raun. I sömu bók er fullyrt að ekki sé jafnræði milli milli aðalhandhafa ríkisvaldsins, þar sé Alþingi ótvírætt valdamesta stofnunin sem byggist á fjárstjórnarvaldi þess og 1

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.