Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Blaðsíða 27

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Blaðsíða 27
Refsiheimildir verða að vera lögbundnar og skýrar. Það er meginregla við lögskýr- ingu í íslenskum rétti, að virða beri ákærða í hag vafa um hvort refsiákvæði taki til háttsemi (in dubio mitius). Þótt lesa megi út úr lögum nr. 81/1976 um veiðar innan íslenskrar landhelgi, að ekki verði aðrir skipverjar en skipstjóri saksóttir fyrir fisk- veiðibrot, segir hvergi berum orðum í lögunum, að skipstjóri skuli bera hlutlæga refsiábyrgð. Samkvæmt framansögðu verður að telja, að refsiábyrgð skv. lögum nr. 81/1976 verði einungis byggð á sök, og skal ákærði þegar af þeirri ástæðu vera sýkn af refsikröfu ákæruvaldsins í máli þessu. Forsendur héraðsdómsins era kunnuglegar, enda byggja þær á sama grand- vallarviðhorfi og ráða má af upphafsákvæði minnihluta Hæstaréttar í dóminum frá árinu 1970, bls. 212. Þó verður að telja að forsendur héraðsdómsins séu til muna skýrari varðandi beitingu þeirrar grandvallarreglu íslensks réttar að sak- felling einstaklings í opinbera máli á hlutlægum grunni verði að byggjast á skýra og ótvíræðu refsiákvæði í lögum.8 91 þessu efni má halda því fram að gera verði ríkari kröfur til skýrleika hlutlægra refsiákvæða, en til annarra refsi- ákvæða. Styðst þetta sjónarmið bæði við sterk laga- og efnisrök, enda um að ræða undantekningu frá meginreglunni um hefðbundna tilhögun refsiábyrgðar einstaklinga. En hvaða þýðingu hafði sérstök tilvísun héraðsdómsins til ákvæða 2. mgr. 6. gr. og 1. mgr. 7. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu? Að mati Jónatans Þórmunds- sonar er tilvísun héraðsdómarans til 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans á misskilningi byggð. Bendir hann á að í nefndu ákvæði sé sú réttarfarslega grandvallarregla staðfest að ákæravaldið beri sönnunarbyrðina og að enginn verði talinn sekur um refsivert brot, nema sekt hans sé sönnuð lögfullri sönnun. Þessi regla gildi jafnt um hvers konar tilhögun refsiábyrgðar og útiloki einungis refsiábyrgð, sem byggð sé á öfugri sönnunarbyrði.10 Héraðsdómarinn virðist vísa til 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans til samræmis við atkvæði minnihlutans í áðumefndum hæstaréttardómi frá 1970. Tilvísun minnihlutans árið 1970 var hins vegar að líkindum byggð á því að sönnunarvafi væri fyrir hendi um hvort athafnir skipstjórans gæfu til kynna einhvers konar saknæman eftirlitsskort, sem gæti orðið grandvöllur að refsiábyrgð sökum óbeins athafnaleysis. Engum slfkum sönnunarvafa var til að dreifa í málinu frá 1995 og því ónauðsynlegt og raunar tilgangslaust að vísa til 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans. í öðru lagi verður því haldið fram hér að tilvísun héraðsdómarans til 1. mgr. 7. gr. mannréttindasáttmálans hafi að öllum líkindum haft úrslitaáhrif á þá nið- urstöðu hans að víkja frá skýrum fordæmum Hæstaréttar varðandi túlkun á fiskveiðilögunum frá 1967 og 1976. Til þess er að líta að ákvæðið hefur að 8 í héraðsdóminum er vísað til 2. töluliðar 6. gr. og 1. töluliðar 7. gr. mannréttindasáttmálans, en rétt er að vísa til málsgreina. 9 í dönskum rétti var þessi grundvallarregla viðurkennd í dómi Hæstaréttar Danmerkur frá árinu 1948 (U. 1948, bls. 849 H). 10 Jónatan Þórmundsson: Afbrot og refsiábyrgð, 2. hluti, 2. útgáfa, bls. 137. Reykjavfk 1995. 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.