Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Blaðsíða 3
Tímarit
löqfræðinqa
2. hefti • 49. árgangur
júní 1999
FANGELSISMÁL
Fyrir skemmstu hélt Dómstólaráð fræðslufund fyrir dómara og aðstoðar-
menn þeirra um fullnustu refsidóma. Fundurinn var haldinn á Selfossi og fang-
elsið á Litla-Hrauni heimsótt að honum loknum.
Starfsmenn Fangelsismálastofnunar héldu fróðleg erindi, þar á meðal fang-
elsismálastjóri, en settur fangelsismálastjóri stýrði fundinum. Afbrotafræðingur
Fangelsismálastofnunar lýsti því að ástand fangelsismála hjá hverri þjóð gæfi
yfirleitt glögga mynd af því á hvaða menningarstigi hún væri. Og spuming
dagsins var m.a. sú hver væri staða fangelsismála á Islandi.
Fangelsi á Islandi eru fimm talsins. Hegningarhúsið við Skólavörðustíg var
tekið í notkun árið 1874, fangelsið á Litla-Hrauni árið 1929, Kvíabryggja árið
1954, fangelsið á Akureyri árið 1978 og fangelsið að Kópavogsbraut 18 árið
1989. Fangelsið á Litla-Hrauni er eitt deildaskipt.
I fangelsunum eru samtals 138 fangarými. Fundardaginn 7. maí voru 92
fangar í afplánun. Þann dag vom því 46 rými ónotuð, sem er gleðilegt, og til
stendur að loka einni deild á Litla-Hrauni yfir sumarmánuðina. A boðunarlista
voru einungis 30 manns, en tíðkanlegt er að boða menn til afplánunar með
rúmum fyrirvara. Þessi listi mun ekki hafa verið styttri í annan tíma. Flesta
rekur minni til þess að ekki fyrir svo löngu var talað um yfirfull fangelsi hér á
landi og langa bið þeirra sem áttu afplánun fyrir höndum. Sú bið var stundum
svo löng að menn voru orðnir nýir og betri menn þegar röðin kom að þeim eða
a.m.k. töldu sig það og hafa eflaust verið í mörgum tilfellum. Þess ber og hér
að gæta að hafi fangelsisrefsing verið dæmd á annað borð er það talinn réttur
þess sem refsingu hefur hlotið að mega afplána hana sem fyrst. Illu er best
aflokið stendur þar. Hvað veldur þessari jákvæðu þróun? Ekki komu fram
afgerandi skýringar á fundinum, en bent var á að með nýrri fangelsisbyggingu
á Litla-Hrauni hafi fangarýmum fjölgað í heild um tuttugu. Þá var gerð nokkur