Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Blaðsíða 31
samkvæmt því að fara fram mat á hverju einstöku tilviki. Það mat er ávallt hug-
lægt þótt segja megi að með því að njörva niður þau skilyrði sem uppfylla þarf
sé reynt að binda það hlutlægum mælikvörðum.
Það er einnig matsatriði hvenær stuðningsúrræði barnavemdamefnda hafa
verið reynd til hlítar. í þeim efnum, eins og ávallt í þessum málaflokki, vegast
á hagsmunir foreldra og barna og spumingar vakna um hversu lengi eigi að láta
reyna á hæfni foreldra til að annast bam sitt og hversu lengi eigi að láta bam
búa við aðstæður sem eru því ekki til góðs. Heimildir bamavemdaryfirvalda til
aðgerða samkvæmt barnaverndarlögunum takmarkast af lögmætisreglunni, en
af henni leiðir að stjórnvaldsákvarðinir verða að vera í samræmi við lög og eiga
sér viðhlítandi stoð í þeim.1 Matskenndum ákvörðunum bamavemdaryfirvalda
eru og settar skorður af jafnræðisreglu stjómsýslulaga og meðalhófsreglu. Mat
barnaverndaryfirvalda á því hvaða sjónarmið skuli leggja til grundvallar
ákvörðun er því ekki frjálst að öllu leyti, heldur bundið bæði af jafnræðisreglu
og meðalhófsreglu, ásamt öðrum efnisreglum lögfestum og ólögfestum.2 3
Þá ber að hafa í huga að stjómvöldum „er skylt að byggja mat sitt á þeim
sjónarmiðum sem glögglega koma fram í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum. Þá
ber stjómvöldum almennt að byggja ákvarðanir sínar á sjónarmiðum sem
augljóslega eru til þess fallin að ná fram markmiði þeirra laga sem ákvörðun er
byggð á, sem og réttaröryggissjónarmiðum og sjónarmiðum um vernd mann-
réttinda", eins og Páll Hreinsson segir í bók sinni Stjómsýslulögin.1
Hafi bamavemdaryfirvöld beitt úrræðum eða aðgerðum sem ekki eiga sér
stoð í lögum, getur það leitt til ógildingar ákvörðunar og bótaskyldu þess sveit-
arfélags sem í hlut á.
3. SKILYRÐI FORSJÁRSVIPTINGAR SAMKVÆMT 25. GR.
BARNAVERNDARLAGA NR. 58/1992
3.1 25. gr. barnaverndarlaga
í 25. gr. bamavemdarlaga nr. 58/1992 er kveðið á um skilyrði forsjársvipt-
ingar. Þar segir:
„Bamavemdamefnd getur með úrskurði svipt foreldra, annað eða bæði,
forsjá bams ef:
a. uppeldi, daglegri umönnun eða samskiptum foreldra við bamið er alvarlega
ábótavant með hliðsjón af aldri þess og þroska,
b. bam er sjúkt eða fatlað og foreldrar tryggja því ekki viðeigandi meðferð,
þjálfun eða kennslu,
c. baminu er misþyrmt, misboðið kynferðislega ellegar það má þola alvarlega
andlega eða líkamlega áreitni eða niðurlægingu á heimilinu,
1 Páll Hreinsson: Stjómsýslulögin, skýringarrit, bls. 147. Forsætisráðuneytið. Reykjavík 1994.
2 Sama rit, bls. 125.
3 Sama rit, bls. 132.
97