Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Blaðsíða 59

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Blaðsíða 59
Maríu Sveinbjörnsdóttur. Þar kemur fram að markmið tilskipunarinnar sé „að veita launþegum rétt á ábyrgð á ógreiddum launakröfum“.29 I þessu sambandi vísaði EFTA-dómstóllinn til niðurstöðu Evrópudómstólsins í Fran- cov/c/í-málinu. I þeim dómi vom atvik sambærileg við málsatvik í máli Erlu Maríu Sveinbjörnsdóttur að því leytinu til að þar reyndi á skaðabótaskyldu ítalska ríkisins af þeirri ástæðu að launþegi hafði ekki fengið bætur úr ábyrgðasjóði launa sem hann taldi sig þó eiga rétt á samkvæmt tilskipun nr. 80/987. Tilskipunin haíði ekki verið tekin upp í landsrétt á Ítalíu í samræmi við fyrirmæli 189. gr. Rómarsáttmálans (nú 249. gr.) og hafði dómur fallið gegn ítalska ríkinu sökum þess. 0 Evrópudómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að vanræksla á að innleiða tilskipun gæti haft í för með sér skaðabótaskyldu aðildarríkis að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. í dóminum var meðal annars fjallað um það hverjir nytu réttinda samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar og um efni þeirra réttinda. Þegar um er að ræða ákvæði EES-samningsins, efnislega sambærileg við ákvæði Rómarsáttmálans, sem eru nægilega skýr og óskilyrt til að hafa bein réttaráhrif þarf varla frekar vitnanna við, slíkar reglur eru til þess fallnar að veita einstaklingum réttindi. Má sem dæmi um það nefna réttarreglur um frjálsa vöruflutninga, fólksflutninga, þjónustustarfsemi og fjármagnsflutninga, sbr. 11. gr., 28. gr., 31. gr., 36. gr. og 40. gr. Einnig má nefna 10. gr. EES-samningsins sem varðar bann við mismunun í álagningu tolla og annarra gjalda og 69. gr. sem kveður á um jöfn laun karla og kvenna fyrir sömu störf. Öll þessi ákvæði eiga það sameiginlegt að eiga sér efnislega hliðstæð ákvæði í Rómarsáttmál- anum sem eru það skýr og óskilyrt að þau geta haft bein réttaráhrif. Af öðrum ákvæðum má nefna 1. mgr. 61. gr. EES-samningsins sem leggur bann við ríkis- styrkjum að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Önnur ákvæði EES-samningsins eru á hinn bóginn of almennt orðuð til að ætla megi að einstaklingur geti byggt á þeim rétt í þeim skilningi sem hér um ræðir, sbr. til dæmis markmiðsákvæði 1. gr. Þá er 3. gr. EES-samningsins, sem felur í sér almenna yfirlýsingu um það að samningsaðilar skuli gera allar við- eigandi almennar eða sérstakar ráðstafanir til að tryggja að staðið verði við þær skuldbindingar sem af samningnum leiða, tæpast nægilega afmörkuð til að á henni einni verði byggð krafa um skaðabætur.31 29 67. mgr. Aðrar tilskipanir sem veita einstaklingum rétt í skilningi þessa hugtaks gætu til dæmis verið tilskipanir á sviði opinberra útboða, svo sem tilskipun nr. 93/37 um samræmingu reglna um útboð og gerð opinberra samninga um vörukaup og tilskipun nr. 93/36 um samræmingu reglna um útboð og gerð opinberra verksamninga. Ennfremur má nefna tilskipanir er varða skaðsemisábyrgð og neytendavemd, til dæmis tilskipun nr. 85/374 um samræmingu á lögum og stjómsýslufyrirmæl- um í aðildarríkjunum vegna skaðsemisábyrgðar á gölluðum vömm og tilskipun nr. 93/13 um órétt- mæta skilmála í neytendasamningum. Þá má nefna tilskipanir um jafnréttismál svo sem tilskipun nr. 75/117 um samræmingu á lögum aðildarríkjanna er varða beitingu meginregiunnar um sömu laun karla og kvenna og tilskipun nr. 79/7 um að meginreglan um jafnan rétt karla og kvenna til al- mannatrygginga komi til framkvæmda stig af stigi. 30 Mál 22/87 Framh’œmdastjórnin gegn Ítalíu [1989] ECR 143. 31 Annarrar skoðunar er Malcolm Ross um efnislega sambærilegt ákvæði 5. gr. Rómarsáttmálans (nú 10. gr.): „Beyond Francovich". (1993) 56 The Modem Law Review, bls. 64-65. 125
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.