Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Page 76

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Page 76
leikmann virtist það vera að flytja sömu hrúguna frá einum stað til annars frá morgni til kvölds. Ekki mikið um vinnuvélar þarna. Dagskrá fyrsta dagsins hófst á hádegi með málsverði á veitingahúsi og síðan var heimsókn í Forboðnu borgina, heimkynni kínversku keisaranna um aldir. Forboðna borgin stendur á móti Torgi hins himneska friðar í miðri Beijing. Við mæðgur sváfum yfir okkur og vöknuðum ekki fyrr en hópurinn hafði lokið málsverðinum. Við ákváðum því að hitta hópinn í Forboðnu borginni og tókum bíl þangað. Við skoðuðum Forboðnu borgina í heila tvo klukkutíma en fundum aldrei Islendingana. Þarna upplifðum við það hvað útlendingar eru Kínverjum framandi, mikið var horft á okkur, fólk brosti og vildi fá að taka af okkur mynd. Agengni kortasalanna var mikil, og þegar ég gaf einum þeirra tíu króna íslenska mynt lá við að ráðist yrði á okkur, þvílikur var atgangur hinna að fá líka íslenska mynt. Fyrsta kvöldið var móttaka hjá íslensku sendiherrahjónunum, Ólafi Egilssyni og Rögnu Ragnars á glæsilegu heimili þeirra í nýbyggðu íbúðahverfi í útjaðri Beijing. Þarna hitti hópurinn fulltrúa Kínverska lögmannafélagsins, embættismenn og blaðamenn, og hófust strax fjörugar umræður. Kínverjar tala almennt ekki mikla ensku og þurfti stundum að styðjast við túlka til að geta átt tjáskipti. Að- dáun hópsins vakti Ragnar Baldursson þegar hann túlkaði yfir á kínversku ræð- ur Islendinganna. Daginn eftir hófst hin eiginlega dagskrá. Fyrst var fundur með fulltrúum Kínverska lögmannafélagsins. Formaður félagsins, hinn brosmildi Ren Jisheng, bauð hópinn velkominn og sagði að með heimsókn svo stórs hóps lögfræðinga frá einu landi Vesturlanda í boði kínverskra lögfræðinga væri brotið blað í sögu félagsins. Hann fræddi okkur síðan um félagið ásamt varaformanni sínum, Fu Ja. Næstu daga fræddumst við frekar um kínverskar lagahefðir og réttaxfar, sem er framandi okkur Vesturlandabúum. Kínversk réttarhefð einkennist mjög af þeirri heimspeki sem mest hefur verið ráðandi: Siðaður maður þarf ekki að stjórnast af settum lögum. Siðvenjur móta samvisku hans og segja honum hvemig beri að haga sér í öllum samskiptum við aðra menn. Af þeim sökum hefur vægi skráðra réttarreglna verið fremur lítið í nánast allri sögu Kína. Skráð lög og lögbækur hafa hins vegar verið þekkt um árþúsundir. Fyrsta lögbókin sem kunnugt er um var rituð um árið 400 f. Kr. Efni hennar var að mestu á sviði refsiréttar. Úr sögu kínverska keisaraveldisins ber einkum að nefna lögbók Tang-keisaraættarinnar sem ríkti frá 618 til 907. Lög- bókin tók til allra helstu réttarsviða, bæði hvað varðaði einkarétt og opinberan rétt. Hún var höfð til fyrirmyndar lögbókum sem aðrir keisarar settu. Síðasta lögbókin í tíð keisaraveldisins var sett árið 1905. Þegar kommúnistar komust til valda í Kína 1949 höfnuðu þeir öllum fyrri lagaarfi, sem var talinn hafa það helst að markmiði að tryggja stöðu og áhrif ráðandi stéttar og varð því að þoka fyrir hagsmunum fjöldans. Hinn nýi réttur varð að samrýmast alræði öreiganna og þróast með stéttabaráttunni. í menning- 142

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.