Ægir - 01.07.1996, Blaðsíða 40
BREYTT FISKISKIP
Tæknideild Fiskifélags íslands
Miðvikudagitm 10. júlí sl. kom skuttog-
arinn Snorri Sturluson RE 219 (1328) úr
breytingum frá Spátú. Breytingarnar fðru
fram hjá skipasmíðastöðinni Freire í Vigo
á Spáni, en hönnun og ráðgjöf þeirra ann-
aðist Toni sf. og Tœkniþjónustan sf.
Helstu breytingar eru að skipið er lengt
um 6 m, 10 bandabil, allur spilbúnaður er
nýr, aðalvél, gír, rafall og skríifubúnaður er
nýr. Móttaka stœkkuð og bœtt við annarri
fiskilúgu. Nýjar lestarlúgur í bceði dekk og
einnig dekklúga yfir vinnsluvélum. Smíð-
aður pallur á milli toggálga og afturmast-
urs. Hlerasœti smíðuð á afturgálga. Skipið
er í eigu Granda hf. Skipstjóri er Kristinn
Gestsson, yfirvélstjóri er Friðleifur Krist-
jánsson. Framkvaemdastjóri útgerðar er
Brynjólfúr Bjamason.
HELSTU BREYTINGAR
Breytingar á stálvirki o.fl.
Skipið var lengt um 6 m, 10 bandabil
600 mm hvert. Lengdi hlutinn kemur til
stækkunar á lestarrými og vinnslusal.
Eldsneytisolíutankar í botni stækka sem
nemur lengingunni. Ný þilfarshús koma
í lengda hlutann á togþilfari og í þeim
eru dælustöðvar fyrir spilbúnað, stakka-
geymsla, geymsla og verkstæði. Bætt er
við annarri fiskilúgu framan við þá
gömlu, móttaka stækkuð og komið fyrir
færiböndum í botni móttöku. Lestarlúg-
ur í efra- og neðra dekki færðar út að s.b.-
síðu. Einnig ný lestarlúga í efra dekk og
er ætluð til að auðvelda aðgengi að
vinnslusal. Togþilfar endurnýjað. Hlera-
sæti fyrir varahlera er byggt á toggálga.
Toggálga lítillega breytt og smíðaður pall-
ur frá honum að afturmastri. Stýrisblað
stækkað og nýr hæll.
Vélbúnaður
í skipið var settur nýr aðalvéla-, gír-,
rafala- og skrúfubúnaður. Aðalvélin er
Wártsila 6R 32E 2.460 KW (3.345 hö)
við 750 sn/mín. Gír við aðalvél er
Wartsila Propulsion SVC 750 P480, nið-
urgírun 5,65:1. Skrúfuhringur og
skrúfubúnaður er frá Wártsilá Prop-
ulsion og þvermál skrúfu er 3.600 mm,
snúningshraði á skrúfu er 132,7 sn/mín.
Nýr vélarúmsblásari kemur til með að
mæta aukinni loftnotkun. Nýr rafall er
frá Leroy Somer gerð LSA52 L9-4P og
skilar 1.600 KW 2.000KVA við 1.500
sn/mín. Þá voru einnig gerðar breyting-
ar á rafmagnstöflu tilheyrandi nýjum
rafal. Við aðalvél er fullkominn seigju-
mælir og hitunarbúnaður fyrir svart-
olíu. Vaktklefi í vélarúmi er stækkaður.
Vökvaþrýstikerfi fyrir vindur er nær
alveg eins og var sett í Engey RE 1 og
eru sex rafdrifnar Allweiler dælur: tvær
PVGS 1700-46 og skila 1.600 1/mín,
tvær PVGS 2200-46 og skila 2080 1/mín,
tvær PVGS 660-46 og skila 600 1/mín.
Kerfisþrýstingur er 50 bör og rafmótorar
eru 2x148 KW, 2x193 KW og 2x55 KW.
íbúðir
Helstu breytingar á íbúðarými eru að
nýrri setustofu var komið fyrir í rými
þar sem áður var hlífðarfatageymsla og
40 ÆGIR