Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1996, Blaðsíða 7

Ægir - 01.08.1996, Blaðsíða 7
Stærsti frysti- togari heims Helen Mary er 116,7 m á lengd og 17,7 m á breidd. Nýlega tóku hollenskir eigendur sem gera út frá Rostock í Þýskalandi, í nafni Oderbank Hochseefischerei, nýtt skip sem trúlega er einn stærsti frystitogari í heiminum og án vafa meðal þeirra allra fullkomnustu. Togar- inn heitir Helen Mary og er 116,7 metrar á lengd og 17,7 metrar á breidd. Hún er knúin áfram af tveimur MAK vélum sem hvor um sig framleiðir 5.308 hestöfl. Þessu nýja flagg- skipi er einkum beint til veiða á uppsjávarfiski í flottroll sem verður frystur um borð en frystigetan er 280 tonn á dag og lestarnar eru þrjár, samtals 7.500 rúmmetrar. Tólf sjókæli- tankar, samtals 1.020 rúmmetrar, eru einnig um borð og ísvél sem getur framleitt 40 tonn á dag. Skipið var hannað af Vik og Sandvik í sam- vinnu við hönnuði YVC skipsmíðastöðvar- innar í Isjeel í Hollandi sem var aðeins 15 mánuði að smíða skipið, sem er ótrúiega skammur tími fyrir skip af þessari stærð. Mjög fullkomið tölvukerfi er um borð í skipinu sem fylgist með og skráir allt vinnslu- ferli. Bæði eigendur í landi og væntanlegir kaupendur geta fylgst með umræddri tölvu og fengið þannig aðgang að upplýsingum um ástand aflans. Skipið fer fyrst til veiða í þýskri landhelgi og veiðir síld úr kvóta Þýskalands en síðan er ætlunin að stefna því í Smuguna í Barentshafi í haust en í janúar á skipið að fara á makríl- veiðar úti fyrir ströndum Máritaníu í Afríku. Þar veiðist makríll í miklum mæli en uppsjáv- arfiskar eins og síld, makríll og hrossamakríll eru þær tegundir sem einkum er horft til. Þessi risatogari verður því að fiska við hlið íslenskra togara í Smugunni í haust og gæti sennilega sést í Síldarsmugunni að vori. FISKUR MÁIUADARIIIIS Fiskur mánaðarins er túnfiskur (Thunnus thynnus) sem ekki er ehn í hópi nytjafiska á íslandsmiðum. Breyting getur orðið þar á en nú eru tveir jap- anskir túnfiskbátar á veiðum innan íslenskrar lögsögu með íslenska eftirlits- menn um borö. Túnfiskurinn er stórvaxinn fiskur og straumlínulaga, hæstur um miðj- una og er hæðin fjórðungur lengdarinnar. Haus- inn er stór og keilulaga. Bakuggar eru tveir og stutt á milli þeirra en aft- an við bak- og raufarugga er röð smárra ugga aftur að sporði og geta þeir lagst niður í rauf. Stirtl- an er sterkleg og kjölur á hliðum hennar. Þetta gerir það að verkum að túnfiskurinn getur synt afar hratt. Helstu heimkynni túnfisksins eru Miðjarðarhaf, Svartahaf og Atlantshaf frá Kanaríeyjum og Azóreyjum norður undir írland. Þar fyrir norðan verð- ur hans oft vart en hefur fram til þess lítt veriö veiddur á þeim slóðum. Túnfiskurinn er víða mjög eftirsótt vara og þykir mjög góður matfiskur. Hann er uppsjávar- og miðsævisfiskur og étur einkum alls konar aðra fiska og þvælist víða í fæðuleit og gengur oft í torfum. Túnfiskurinn verður kynþroska 3-4 ára þegar hann vegur um 15 kíló en stærstu túnfiskar eru rúmir þrír metrar á lengd og geta vegið 560 kíló. Heimild: lslenskir fiskar, eftir Gunnar Jónsson. MORENOT FÆR ISO-VOTTUN Verksmiðja MoreNot í Noregi varð nýlega fyrstur nótaframleiðenda í Evrópu til þess að fá vottun samkvæmt gæðastaðli ISO. MoreNot er þrautreynt og gamalgróið fyrirtæki sem hefur verið þekkt á íslenskum markaði s.l. 15 ár. Umboðsaðili fyrir MoreNot A/S á Islandi er Netanaust í Súðarvogi 7 og er Jón Eggertsson framkvæmdastjóri að vonum ánægður með sína menn en ISO vottun tryggir hámarks gæði og stöðugleika í fram- leiðslu. Jonas Hildre forstjóri MóreNot A/S í Noregi tekur við skjaii til staðfestingar því að verksmiðja hatis hefur fengið ISO vottun fyrst nótaverksmiðja í Evrópu. ÆGIR 7

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.