Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1996, Blaðsíða 17

Ægir - 01.08.1996, Blaðsíða 17
„Nei. Við höfum verið uppteknir við að veiða þann kvóta sem okkur er út- hlutað og lagað okkar rekstur að því. Mér vitanlega hafa menn ekki verið að stunda þetta en aðrir verða að svara fyr- ir sig. Við höfum leigt til okkar kvóta en ekki frá okkur. Mín skoðun er sú að þab sé hlutfalls- lega mjög lítið um kvótaleigu meb því formi sem þú lýstir, án þess að ég þekki það til hlítar. Hitt er svo annað mál að samstarf milli stórra fyrirtækja getur orðið um að skipta á kvóta mifli þeirra í þeim tilgangi að ná fram aukinni hagkvæmni í veið- um og vinnslu. Slíkt samstarf mun verða meira áberandi á næstu árum en hingaö til, sem er mjög eftirsóknarvert." Segja má ab kjarasamningar sjó- rnanna hafi í tveimur síðustu samning- um snúist mikið um kvótamál, framsal og þátttöku sjómanna í kvótakaupum sem bendir óneitanlega til víðtækrar óá- nægju. Bendir það ekki til þess að mikið vanti á ab eining sé um kvótakerfið? „Það hafa verið gerbar ráöstafanir til þess að koma í veg fyrir ab sjómenn séu látnir taka þátt i kvótakaupum, sem ég held að allir geti verið sammála um að sé ekki heiðvirt athæfi. Þab er hins vegar skilyrði fyrir því að fiskveiöistjórnunin virki að framsal sé frjáist og ég vona að menn missi aldrei sjónar á því. Ágreiningur og óánægja er vissulega til staðar en ég er ekki viss um að hún sé í neinu hlutfalli við umfang þessa at- hæfis. Oft þarf fá dæmi til þess að stuðla ab stórri deilu en þetta er verkefni fyrir aðila að fást við." Á móti veiðileyfagjaldi Oft er rætt um eignarhald á kvóta og vísað til þeirra greinar laga um fiskveiði- stjórnun sem segir að fiskimiðin séu sameign þjóðarinnar og hins vegar til dóma um erfðarétt til kvóta sem ósam- rýmanlegra sjónarmiða. Hugmyndin um veiðileyfagjald er oft rædd í þessu sambandi. Ert þú hlynntur veibi- leyfagjaldi? „Nei, ég er ekki fylgismaður veiði- leyfagjaids. Þegar beita þurfti takmörk- un á sókn í auðlind sem þessa þá var út- hlutun eftir aflareynslu auðvitað eina Úr bókaútgáfu í bæjarútgerð Brynjólfur Bjarnason fæddist 18. júlí 1946 í Reykjavík og varð stúd- ent frá VÍ1967 og cand. oecom frá HÍ 1971 en nam síðan rekstrarhag- fræði við háskólann í Minnesota og lauk MBA-prófi þaðan 1973. Brynjólfur starfaði hjá VSÍ til 1976 þegar hann gerðist forstjóri Al- menna bókafélagsins og gaf út bækur til ársins 1983 þegar hann færði sig um set í stól forstjóra Bæjarútgerðar Reykjavíkur. BÚR varð hluti af Granda hf. við stofnun hans 1985 og þar hefur Brynjólfur setið við stjórnvöl síðan. Brynjólfur situr í stjórnum margra félaga og fyrirtækja í atvinnulífinu og má nefna þar á meðal félög eins og LÍÚ og Samtök fiskvinnslustöðva. færa leiðin eins og gert var hér. Þab var eðlilegast að þeir sem hefðu stundað sjó- inn og byggt upp atvinnurekstur til þess fengju hlutdeild í samræmi við umsvif. Allar ákvarðanir um fjárfestingar og aöferðir í þessari atvinnugrein fara fram miðað við að ekki sé veiðileyfagjald og það er því ekki hægt ab setja á svona gjald að mínu mati. Það væri röng ab- ferð og með því væri komið aftan að mönnum. Það sem ég hef leyft mér ab segja er að vegna þess að lögin eru með þeim hætti, sem þú vísaðir til, þá yrbi farin sú leið að þegar hagnaður fyrirtækja í sjáv- arútvegi er orðinn óþolandi mikill eða hvernig sem á nú ab orða það, þá greiði þau fyrirtæki tekjuskatt aukalega til þess að uppfylla ákvæði fyrstu greinar lag- anna um fiskveiðistjórnun. Árni Vilhjálmsson, stjórnarformaður Granda, hefur nefnt þá aðferð að gera samning um afnot af aflaheimildum til langs tíma, t.d. tólf ára og þá komi gjald fyrir. Sú festa sem slíku fylgdi myndi gera fyrirtækjum kleift að vinna meb þessu. Þetta er í rauninni spurning um aðferðafræði. Það væri algerlega óásætt- anlegt að setja á eitthvert gjald árlega. Annað atriði sem hollt er að muna er að standi hugur manna til gjaldtöku af þessari sameign þjóðarinnar þá hlýtur hið sama ab gilda um aðrar auðlindir, s.s. vatnsorku, hitaorku, hálendið o.sv.frv." Ágúst Einarsson, varaformabur Granda og einn stærstu hluthafa hefur lýst yfir stuðningi við veiðileyfagjald. Er klofningur í forystusveit Granda um þetta mál? „Nei, ætli það sé ekki eðlilegt jafn- vægi eins og úti í þjóðfélaginu. Hér eru skiptar skobanir eins og annars staðar." Munum alltaf leita að nýjum tæki- færum Nú er smátt og smátt verið að loka úthafinu. Búib er að semja um veiðar á Reykjaneshrygg og þó Smugan sé opin enn er sýnt ab samiö verði um veiðar þar á næstu árum. Hvað finnst þér sanngjarnt að íslendingar fái mikinn kvóta í Smugunni og hvert eigum við að snúa okkur í úthafinu þegar verður lokað þar? „Mér finnst 30-40 þúsund tonn kvóti í Smugunni sanngjarn, en vib skulum sjá hvernig árið í ár fer. Mér finnst ekki liggja á borðinu hvert skuli leita eftir meiri veiði. Við íslendingar vorum lengi uppteknir af veiðum innan iandhelg- innar. Takmörkun á þeim veiðum sam- fara auknu frelsi í viðskiptum leiddi til úthafsveiða og fjárfestinga í erlendum fyrirtækjum. Þó við sitjum hér nú og sjáum ekki ný tækifæri blasa við þá stendur leitin alltaf yfir og sú leit beinist að fjölmörg- ÆGIR 17

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.