Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1996, Blaðsíða 29

Ægir - 01.08.1996, Blaðsíða 29
tryggður en hefði sjálfur viljað halda áfram. Hann fór því í Iand og settist ab í Keflavík. En slysaferl- inum var ekki lokið. Úr sex metra hæð niður á steingólf Árið 1984 var Jón að vinna á verkstæði í Hafnarfiröi og féll þá úr sex metra hæð niður á steingólf. Hann kom niður á bakib og höfuðiö og braut þrjá hryggjarliði. „Þeir sögðu á Borgarspítalanum að ég myndi aldrei ganga aftur. í framhaldinu lenti ég inn á sjúkrahúsinu í Keflavík og þar lenti ég undir handleiðslu Sigurjóns Sigurðarsonar bæklunar- læknis og hann bjargaði mér algjörlega, ég var kominn á fætur eftir hálfan mánuð og hann hefur haldið mér á floti síðan. Ef einhver lækn- ir veit hvab hann er að gera þá er það hann." Árið 1986 festist handleggurinn á Jóni vegna kölkunar í háls- og axlarliðum vegna eftirkasta af hálsbrotinu í Snorra. Þá var það Hallgrímur Magnússon læknir sem tók til sinna rába. „Hann setti slöngu í hálsinn á mér og dældi inn deyfilyfjum og síðan sneri hann upp á handlegginn á mér og braut í burtu alla kölkun í liðnum. Ég sat þarna steindofinn og heyrði bara skrubningana þegar þetta var að molna í burtu." Hélt áfram að berjast Jón segir að lykilatriðið í því að komast aftur á skrið eftir óhöpp og slys eins og hann hefur mátt þola sé að gefast aldrei upp. „Mér datt aldrei annað í hug en að haida áfram að berjast og geta unnið eitthvað. Eftir slys- ið á Snorra fór ég í sund löngu áður en ég mátti og liðkaöist heilmikið við það. Ég hef alltaf notað það sem sjúkraþjálfun og líkamsþjálfun og fer nú á hverjum einasta degi í sund og stundum tvisvar á dag ef ég er mjög stirður. Sundið er allra meina bót og hefur bjargab mér algjöriega frá því að verba ab aumingja en ég leita líka mikið í gufu- böð og heita potta til að liöka mig og tek eins lít- ið af verkjalyfjum og ég kemst af með því ég vil vita hvar ég finn til. Svo var það mitt happ að lenda hjá Sigurjóni lækni í Keflavík því hann er algjör snillingur. Ég fer í sprautumeðferð hjá honum alltaf annab slag- ið." Enginn feluleikur með fylliríið Jón tilheyrir þeim hópi manna sem stunduðu sjómennsku á síðutogurum og fannst flest önnur sjómennska hálfgert dútl. Þessir menn höfðu oft á sér orð fyrir slark og harðhnjóskulegt lífemi en þeim fer stöðugt fækkandi sem eiga að baki langan feril sem „togarajaxlar" eins og þeir voru oft nefndir. „Við vorum aldrei með neinn feluleik með okkar fyllirí í landi og því bar mikið á okkur. En þetta var hörkuerfiði um borb og fljótt ab renna af mönn- um." Jón segir að sjórinn hafi alltaf heillað sig og ef ekki væri fyrir slys og óhöpp væri hann enn til sjós. Hann var á ýmsum skipum sem oft öfluöu vel og sigldi samtíða mörgum þekktum aflaskipstjórum. Halldór Halldórsson, sem lengi stýrbi Maí GK, var snjall skipstjóri ab mati Jóns. Loftur Júlíusson var annar mikill aflaskipstjóri. Hann nefnir einnig Guðbjörn Jensson, sem lengi stýrði BÚR-togumm, sem sérstakan snilling og ljúfmenni. Prúðasti og lagnasti skip- stjóri sem Jón sigldi með, séntilmaður sem skipti aldrei skapi, var Sigurjón Stefánsson sem tók við Ingólfi Arnarsyni nýjum 1946 og stýrði svo skuttogara með sama nafni og fiskaði alltaf vel. Jón sigldi lengi með Markúsi Guðmunds- syni á Júpíter og Auðuni Auðunssyni á Narfa RE. □ FRAMTAK, Hafnarfirði Kraftmikil og lipur viðgerðarþjónusta nú einnig dísilstillingar FRAMTAK - alhliða viðgerðarþjónusta: ________« VÉLAVIÐGERÐIR ________* RENNISMÍÐI ________» PLÖTUSMÍÐI BOGI • DÍSILSTILLINGAR Viðurkennd MAK Þjónusta. » FRAMTAK VÉLA- OG SKIPAÞJÓNUSTA Drangahrauni Ib Hafnarfirði Sími S65 25S6 • Fax 565 2956 GÓO ÞJÓNUSTA VEGUR ÞUNGT ÆGIR 29

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.