Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1996, Blaðsíða 24

Ægir - 01.08.1996, Blaðsíða 24
Feigðarför Röðuls GK í janúar1963 Mengunarslys í íslenskum togara I janúar 1963 varð mengunarslys um borð í togararanum Röðli GK frá Hafnarfirði þegar metylklóríð sem notað var sem kælimiðill á kælikerfi skipsins lak út ■ andrúmsloftið og komst í vistarverur skipverja frammi í skipinu. Flestir sem þar bjuggu veiktust, sumir mjög alvarlega, aðrir minna og einn lét lífið. Svo vir&ist sem vanþekking manna á áhrifum mengunar af þessu tagi í bland við kæruleysi hafi átt sinn þátt í því hvernig fór. Eftirköst mengunarinnar urðu í mörgum tilvikum mjög slæm á þá sem veiktust mest og læknar telja að hún hafi leitt til ótímabærs dauðdaga nokk- urra úr áhöfninni og varanlegrar örorku í öðrum tilvikum. Þeir sem veiktust voru flestir ungir menn í blóma lífsins og sá sem lést var aöeins tvítugur. Alls voru 29 menn í áhöfn Röðuls og samkvæmt bestu fáan- legum heimildum veiktust 15 þeirra. Einn lést strax en 10 úr hópnum sem eftir lifði eru nú látnir og er meðaldánaraldur þeirra aðeins 38,7 ár. Fjórir þeirra sem veiktust eru enn lifandi, þar af tveir sem veiktust töluvert, en hinir tveir veiktust mjög lítið. 14 menn í áhöfninni veiktust ekki og úr þeim hópi eru 7 látnir í dag og meðaldánaraldur þeirra 66,8 ár. Hvað gerðist? Togarinn Röðull GK taldist í hópi ný- sköpunartogara. Hann var smíðaður í Bretlandi árið 1948, 680 brúttólestir með 1.000 hestafla gufuvél. Hann var gerður út af fyrirtækinu Venusi í Hafnarfirði allt til ársins 1974, en þá er hann tekinn af skrá og talinn ónýtur. Röðull hélt til veiða 15. janúar 1963 og átti förin að veröa hefðbundin veiöiferð en 17. janúar varð vart við mikil veikindi meðal skipverja sem bjuggu frammi í lúk- ar. Fyrstu viðbrögð yfirmanna voru þau að álíta að um matareitrun gæti verið að ræða, en einnig lék grunur á að neysla eit- urlyfja eða vímuefna ylli veikindum mannanna þar sem viss einkenni bentu til þess. Hinir veiku þjáðust af magakvölum, uppköstum og höfuðverk, en einnig voru þeir sljóir, augnaráð starandi og minnis- leysi og rugl var áberandi í fari þeirra. Sóttin elnaði jafnt og þétt og að kvöldi 18. janúar lést Snæbjöm Aðils, ungur há- seti, og þá var skipinu siglt inn til Vest- mannaeyja þar sem haft var samband við lækni og tveir þeirra verst höldnu voru fluttir á sjúkrahús. Því næst var siglt til Reykjavíkur og það var ekki fyrr en við komuna þangað sem fyrst varð ljóst að hér var um að ræða eitrun frá kælikerfi skipsins sem lak methylklóríðinu sem var notað sem kælimiðill. Methylklóríð var viðurkenndur kæli- miðill þegar skipið var smíðað og var not- að um borð í fjölda nýsköpunartogara við ísland en vék smátt og smátt fyrir freoni sem mddi sér til rúms á sjötta áratugnum og árið 1963 var Röðull eitt fárra skipa sem enn voru með óbreytt kælikerfi. íbúðir hásetanna dauðagildra Kælivélin var staðsett við hlið netalest- ar sem var beint undir vistarverum skip- verja í framskipinu og þegar kerfið fór að leka áttu gufurnar greiða leið í netalestina og þaðan í íbúðirnar. Utblástur var í vélar- rúminu til þess að blása lofti út en öryggi var ónýtt og því var útsogiö ekki virkt. Loftræsting úr klefum áhafnar var höfð lokuö vegna kulda sem leitaði þar inn svo gufurnar þéttust í íbúðunum og ástandið versnaði stöðugt eftir því sem menn lágu lengur í kojum sínum. Þegar kælikerfið fór að leka voru fyrstu viðbrögð vélstjóra sem sáu um kerfið að bæta á það methylklóríði. Því vom þeir vanir enda var það sannfæring þeirra og allra annarra um borð að hættulaust væri með öllu að anda að sér gufum af methyl- klóríði. Mál manna var að ekkert gerði til þótt kerfið læki. Fyrsti grunur um að um eitrun gæti verið að ræða kviknaði í huga fyrsta stýri- manns þegar hann fór fram í lúkar á leið- inni frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur til að stumra yfir einum hinna veiku. Þá fannst honum hann finna fyrir ýmsum einkennum sem rénuðu þegar hann lét opna loftræstitúöur í klefanum. Stýrimað- ur hafði orð á þessu við skipstjóra sem kallaði vélstjóra á sinn fund en hann af- tók með öllu að um eitrun gæti verið að ræða. Þó loftræstitúður væru opnaðar í íbúðum batnaði andrúmsloftið lítið þar sem suðaustankaldi blés á eftir skipinu og sneru því túðurnar upp í vindinn. Málað yfir viðvörunarmerki og leið- arvísir ekki þekktur Við sjópróf sem haldin voru í Hafnar- firði kom fram að af hálfu framleiðanda skipsins var varað mjög við innöndun efnisins og hvatt til varkámi í umgengni við það. Viðvörunarmerki höfðu verið við kælivélina og í leiðbeiningabæklingi sem var um borð voru ítarlegar upplýsingar um hættuna sem stafað gæti af methyl- klóríði og leiðbeiningar um meðferð þess. Það kom einnig fram í sjóprófunum að vélstjórar höfðu áður en þetta gerðist orð- ið varir við eitrunareinkenni þegar þeir þurftu að meðhöndla methylklóríð og 24 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.