Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1996, Blaðsíða 15

Ægir - 01.08.1996, Blaðsíða 15
ekki lygi. Reyndin er sú að menn gera sínar áætlanir og áform. Fiskveiðistjórn- unarkerfið setur mönnum ákveðin mörk og síðan er verkefniö fólgið í því að laga útgerðarmynstrið að þeim mörkum. í þessari atvinnugrein hefur auðvitað orðið gífurleg breyting, bæði í hugsun- arhætti og vinnubrögðum, og almennt tel ég að stærri sjávarútvegsfyrirtæki stundi áætlanagerð af þessu tagi." Er kvótakerfið mikilvæg forsenda þess að það sé hægt? „Ekki myndi ég telja þaö. Miklu frek- ar hefur hugsun manna breyst frá því að horfa til magns en nú horfa menn til verðmæta í staðinn. Nú eru engir afla- kóngar heldur verðmætakóngar. Kerfið hefur kannski ýtt undir þessa hugsun því það verkefni að nýta kvótann sem best kallar á nýja hugsun." Botnfiskvinnsla Granda rekin með hagnaði Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, hefur ítrek- að sagt að undanförnu að botnfisk- vinnslan sé rekin með miklum halla. Hvernig er þessi staða hjá Granda og hvert er vægi botnfiskvinnslunnar í rekstri fyrirtækisins? „Grandi hefur farið í gegnum miklar breytingar á ferli fyrirtækisins og mest á síðastliðnum fjórum árum með tilliti til breytinga á samsetningu eigna og var hlutur sjófrystingar aukinn. í dag rekum við fjögur frystiskip og fjóra ísfisktogara. Þetta var gert af ásetningi vegna tak- markana á aflaheimildum. Þáttur vinnslunnar í hagnaði hefur þess vegna breyst nokkuð á undanförn- um ámm. Afkoma landvinnslunnar hef- ur verið rýr og fyrirtækin hafa reynt að bregðast við með því að færa sig yfir í sjófrystingu. Hins vegar er þetta afar misjafnt milli fyrirtækja. Hin hefð- bundna vinnsla í þorski hefur ekki notið sömu verðbreytinga og karfi á undan- förnum árum. Karfi sem fisktegund hef- ur styrkt sig í afurðasölu meðan þorskur hefur staðið í stað. Þetta fyrirtæki hefur búiö við það að við úthlutun á kvóta 1984 var þeim fyr- irtækjum sem síðar stóðu að Granda út- hlutað miklu af karfa. Þau höfðu enda verið hvött til veiða á karfa með sér- stakri uppbót til þess að beina veiðinni úr þorski. Á sínum tíma voru þessi fyrir- tæki ákaflega óánægð með þetta og fóru þess á leit við yfirvöld að þetta yrði jafn- að yfir flotann. Það þótti þorskmönnum ekki mikið í varið. Svona gerast hlutirn- ir og þó þorskurinn sé erfiðari í vinnslu núna þá er allt breytingum háð. Þetta fyrirtæki hér fór á sínum tíma út í mikla sérhæfingu undir kjörorðinu: sérhæfing og sjálfvirkni. í því fólst aö í fiskvinnslunni voru aðeins unnar þrjár fisktegundir: karfi, ufsi og þorskur. Aðrar tegundir voru seldar á mörkuðum. Við vorum reyndar í nokkrum vandræðum með þetta fyrirkomulag frá 1986 til 1987, en þá tókum við þátt í að stofna Faxamarkað og síðan hefur þetta geng- ið vandræðalaust. Þetta fyrirkomulag hefur leitt til meiri sjálfvirkni og hag- kvæmni og til þess er leikurinn gerður." Botnfiskvinnsla Granda er þá rekin með hagnaði? „Já, hún er það. Ekki miklum að vísu en hagnaði samt." Þannig má segja að Grandi sé ekki hluti af því sem stundum er kallaður „grátkórinn" og er þá vísað til barlóms fiskverkenda sem oft hafa verið í því hlutverki að bera sig illa? „Þetta er allt meðaltalstölur," segir Brynjólfur og vill ekki taka undir neitt grátkórstal. „Sumir eru undir, aðrir ekki. Við leggjum okkar af mörkum til að halda meðaltalinu uppi." Ætluðum ekki að loka í sumar urðu nokkur blaðaskrif þegar Grandi ákvað skyndilega að loka frysti- húsinu á Norðurgaröi og senda allt starfsfólkið í sumarfrí á sama tíma. Er þetta stefna fyrirtækisins og er ástæða til þess að endurskoða einhver ákvæði samninga af þessu tilefni? „Ég tel að samningar við landvinnsl- una hvað þetta varðar séu í góöu lagi og ekkert sérstakt athugavert við þá. Við höfum lokað hér tvisvar sinnum á ellefu undanförnum árum og í bæði skiptin gekk það átakalaust fyrir sig, enda til- kynnt með margra mánaða fyrirvara bæði til starfsfólksins og þess stéttarfé- „Að mínu mati hefur tekist vel til með aflaregluna sem nú hefur verið sett á þorskinn og hefur lengi verið beitt á síld og loðnu. Þar eru langtímamarkmiðin sett og verða ekki bitbein hvers árs fyrir sig." laga samkvæmt ákvæðum kjarasamn- inga. Við ætluðum alls ekki að loka í sumar heldur vinna allt sumarið. Þegar hins vegar voru gerðir samningar um veiöi á úthafskarfa á Reykjaneshrygg voru veið- arnar gefnar frjálsar upp að tilskildu há- marki. Fyrir vikið var ekki hægt að sjá lok veiðanna fyrir og þeim var lokið seint í júní og í sömu vikunni héldum við fund með starfsfólkinu og kynntum því stöðu mála en við höfðum reiknað með að stunda veiðarnar á Reykjanes- hrygg fram í júlímánuð og veiða okkar eigin karfakvóta eftir það. Það er hins vegar ekki stefna okkar að loka yfir sumarið og ég vona að til þess þurfi ekki að koma aftur. Þetta skapaði ákveðinn óróa en það var eðlilega og löglega staðið að öllum hlutum." Engar kauphækkanir í ár Nú er mikið rætt um aö þessi góða af- koma hljóti að skila sér í hærri launum í næstu kjarasamningum og farin að sjást hefðbundin merki þess á ýmsum stöð- um í samfélaginu að menn séu farnir að hugsa um samninga. Hefur verið gert ráð fyrir kauphækkunum í áætlunum fyrirtækisins? „Á yfirstandandi ári verða engar kauphækkanir samkvæmt kjarasamn- ingum og við höfum ekki gert áætlanir okkar fyrir næsta ár ennþá." Eru aö þínu mati forsendur fyrir kaup- hækkunum við núverandi aðstæður? „Ég tel að það sé eðlilegt ef atvinnu- ÆGIR 1 5

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.