Ægir - 01.08.1996, Page 8
A fljúgandi ferð
Borgarplast eykur framleiðslugetuna
„Ég get ekki annað en verið bjartsýnn enda er fyrirtækið á fljúgandi
ferð. Við höfum verið að auka veltu okkar stórlega milli síðustu ára
og erum nú að taka inn nýja og fullkomna vél til þess að framleiða ker
og aðrar afurðir sem gerir okkur kleift að anna enn betur stöðugt vax-
andi eftirspurn," sagði Guðni Þórðarson framkvæmdastjóri Borg-
arplasts í samtali við Ægi.
Borgarplast er 25 ára gamalt fyrir-
tæki sem hefur fengist vib plastfram-
leiðslu af ýmsu tagi á löngum ferli en
hefur undanfarin 13 ár lagt höfub-
áherslu á fiskikör og bretti og ýmsa
hluti úr plasti fyrir sjávarútveg og fisk-
vinnslu. Fyrirtækib er starfrækt á
tveimur stöbum, annars vegar vib Sef-
garba á Seltjarnarnesi, þar sem lung-
inn af framleibslunni verbur til, og
hins vegar í Borgarnesi þar sem fyrir-
tækib sleit barnsskónum og heldur
jafnan tengslum vib stabinn.
Mjög mikil þróunarvinna hefur farib
fram innan fyrirtækisins síðustu ár og
ab sögn Guðna hafa undanfarin ár í
kringum 10% af veltu runnib til þróun-
ar og rannsókna sem hefur leitt til þess
ab margir nýr vöruflokkar hafa litið
dagsins ljós.
Eitt stærsta verkefnib af þessu tagi er
þróunarstarf sem Borgarplast hefur
unnib meb rannsóknastofu danskra
svínasláturhúsa. Markmibib er ab fram-
leiba endurvinnaleg ker sem uppfylla
þær ströngu kröfur sem danskur og evr-
ópskur kjötiðnaður gerir. Afraksturinn
er í þann veginn ab líta dagsins ljós og
fari sem horfir getur þetta opnab Borg-
arplasti leib inn á mjög stóra markaði
sem hingab til hafa verib lokabir ab
mestu.
Mikill vöxtur hefur verið í fram-
leibslu á fiskikerum og voru alls fram-
leidd 13.000 ker á árinu 1995. Þetta er
undirstaba framleibslunnar en í krón-
um talib voru kerin 65% framleibslunn-
ar á síbasta ári. Á yfirstandandi ári er
reiknab meb ab framleibslan nái 16.000
kerum og nemi um 75% af framleibslu-
verbmæti.
Ab sögn Guðna er áætlab ab í kring-
um 100 þúsund fiskiker séu í notkun á
Guöiii Þóröarson, framkvœmdastjóri
Borgarplasts.
íslandi í dag í útgerb, fiskvinnslu og
matvælaibnabi. Reikna má meb að í
kringum 15-16 þúsund ker þurfi til þess
eins ab halda í horfinu og endurnýja
þau ker sem ganga úr sér af eblilegum
orsökum en markaðshlutdeild Borg-
arplasts á þessum markabi hefur vaxib
jafnt og þétt frá því ab vera 25% í byrj-
un þessa áratugar í þab ab vera um 60%
á árinu 1995 og fer enn vaxandi.
Borgarplast hefur einnig selt fram-
leibsluvörur sínar til útlanda og fer út-
flutningur stöðugt vaxandi. Ekki er
langt síban fyrirtækib gerbi stærsta sölu-
samning sem þab hefur gert til útflutn-
ings þegar samib var um sölu á 3.000
kerjum til Mótunar-Canada en kerin
verða notub um borb í smábátum sem
þab fyrirtæki hyggst smíba á næstu
tveimur árum.
Um síbustu áramót var lokib vib ab
móta stefnu fyrirtækisins og markmið
til næstu átta ára, eba til ársins 2004.
Áætlab útflutningsverbmæti á árinu
1996 er 120 milljónir.
„Vib unnum þetta í samvinnu vib
Rábgarb, sem er ráðgjafarfyrirtæki, og
erum byrjabir ab vinna eftir áætlun
og gengur vel," sagði Gubni. Mark-
miðin snúast, eins og búast má vib,
um framsókn á innlendum og erlend-
um mörkubum og markmibib er ab
velta fyrirtækisins verbi komin yfir
500 milljónir 1997 og yfir milljarb
árib 2001.
Borgarplast hefur þá sérstöbu meb-
al íslenskra ibnfyrirtækja ab vera meb
gæbavottun samkvæmt ISO. Fyrirtæk-
ib hefur svokallaba ISO 9001 vottun
og var vottorbib gefib út sumarib
1993. Er þab annab hverfisteypufyrir-
tækib í heiminum sem fær slíka vott-
un en ISO staballinn er mjög strangur
og fyrirtækið er háð eftirliti á sex
mánaba fresti.
„Árangurinn er ótvíræbur og ég tel
hiklaust ab þessi ákvörbun hafi skipt
sköpum fyrir fyrirtækið. Gæðavottun
eins og þessi tryggir jöfn og stöðug gæbi
og eflir mjög traust vibskiptamanna á
framleibslunni," sagbi Gubni.
Þó framleibsla fyrir sjávarútveginn sé
undirstaðan sem Borgarplast hvílir á
framleibir fyrirtækið samtals 100 vöru-
tegundir sem nýtast sjávarútvegi, mat-
vælaiðnaði og byggingariðnaði. Fyrir
utan fiskiker má nefna vörubretti, belgi
og baujur, línubala, frauðplastkassa fyr-
ir útflutning á ferskum fiski, einangrun-
arplast, rotþrær fyrir sumarbústabi,
bmnna fyrir frárennsliskerfi og olíuskilj-
ur. Þar fyrir utan tekur Borgarplast ab
sér ýmsa sérsmíbi eftir óskum vibskipta-
vina. □
8 ÆGIR