Ægir - 01.08.1996, Síða 12
Siglfirðingur var
fyrsti skuttogarinn
Páll Gestsson sölustjóri hjá ísfell rifjar
upp gamla tíma
„Við vorum ungir og bjartsýnir og fengum tækifæri til þess að eign-
ast skip. Við létum smíða Siglfirðing Sl 150 í Ulsteinsvík í Noregi
1963-1964. Siglfirðingur Sl 150 var þar með fyrsta skipið byggt með
skutrennu til afgreiðslu á trollinu. Siglfirðingar voru þannig fyrstir Is-
lendinga til að eignast skuttogara," sagði Páll Gestsson, sölustjóri hjá
ísfelli hf., í samtali við Ægi.
Páll ætti ab vera sæmilega traustur
heimiidarmabur um þetta mál þar sem
hann var einn eigenda Siglfirðings og
skipstjóri á honum frá 1964 til 1968.
Þegar rætt er um skuttogarabylting-
una kemur oft upp sú skoðun í máli
mánna að Barði NK 120, sem kom til
Neskaupstaðar 1971 þá 4 ára gamall,
hafi verið fyrsti íslenski skuttogarinn.
Páll bendir á að smíðaár Siglfirðings,
1963-1964, vitni um hvað sé rétt í
þessu máli. Þetta merka skip er enn í
flotanum og heitir Súlnafell EA og er
skráð sem skuttogari. Skipið er jafn-
langt og þab var við komuna til lands-
ins á sínum tíma en hefur verið yfir-
byggt-
„Þetta var gjörólíkt því sem maður
átti að venjast frá síbutoginu. Mabur
var vanur því ab sjá vírana liggja saman
í blökkinni og ég var töluverðan tíma
að átta mig á þessu öllu saman en vib
fiskuðum vel.
Síldveiðar skemmtilegasti veiði-
skapurinn
Siglfirðingur var ekki eingöngu tog-
skip því einnig var hægt að vera með
nót og tók hann þátt í síldveiðum vib
góðan orðstír síðustu fjögur árin sem
síldin veiddist.
Páll minnist með mikilli ánægju ár-
anna á „Rauða torginu" þegar best
fiskaðist.
„Vib vorum með stórt og öflugt skip
og það var oft gaman ab vera til. Síld-
veiðar eru tvímælalaust skemmtilegasti
veiðiskapur sem ég get hugsað mér."
Páll hóf sjómennsku á m/b Gróttu EA
364 1942 á síldveiðum með föbur sínum
Gesti Guðjónssyni skipstjóra og þó það
væri fyrsta sinn sem hann var fullgildur
háseti hafði hann oft fengið að fara með
föður sínum í síldveiðitúra, allt frá 6-7
ára aldri. Fyrstu slíkar minningar eru
tengdar e/s Ármanni Re 255 sem var 110
tonna gufuskip, svokallaður línuveiðari,
í eigu Fylkis hf. í Reykjavík, en þar var
faöir hans skipstjóri í mörg ár.
„Ég fór fyrst á togara haustið 1946 á
b/v Faxa EK með landsþekktum skip-
stjóra, Sigurjóni Einarssyni frá Hafnar-
firði."
Páll útskrifaðist úr Stýrimannaskól-
anum árið 1949 og þá lá leiðin til Siglu-
fjarðar þar sem verið var að hefja tog-
araútgerð og þar varð starfsvettvangur
Páls næstu 20 árin.
En hvernig vildi þab til að Siglfirð-
ingar urðu fyrstir íslendinga til þess að
láta smíða fyrir sig skuttogara?
„Það er dálítil saga á bak vib það og
hún hefst þegar togarinn Elliði fórst út
af Breiðafirði árið 1961."
Þegar Elliði fórst
Togararnir Elliði og Hafliði vom gerð-
ir út frá Siglufirði og var Páll skipstjóri
á Hafliða þegar þetta gerðist. Mikill leki
kom að Elliða en áhöfninni var bjargað
á dramatískan hátt um borð í Júpíter RE
sem var undir stjórn Bjarna Ingimars-
sonar. Tveir menn fórust en þeir týnd-
ust í gúmbát. Þjóðin fylgdist grannt
með þessum atburðum og Gunnar
Thoroddsen fjármálarábherra tilkynnti
Siglfirðingum fljótlega eftir þetta að 6
milljónir króna hefbu verið lagðar á
reikning og myndu renna til að styrkja
Siglfirðinga til að eignast nýtt skip í stað
Elliöa. Það var síðan rúmu ári síðar að
bæjarstjórinn á Siglufirði kallaði Pál og
fleiri unga skipstjórnarmenn í bænum
á sinn fund til að skoða teikningar af
skipum sem borist höfðu og vekja
áhuga þeirra á að stofna félag um nýtt
skip.
„Við skoöuðum margar teikningar,
þar á meðal var ein teikning af litlum
skuttogara sem okkur leist langbest á.
Siglfirðingur hf. varb til og skuttogari
byggður samkvæmt fyrrnefndri teikn-
ingu og við sáum aldrei eftir því.
Vib höfðum séð þýska skuttogara
hérna á miðunum. Þetta voru miklu
stærri og öflugri skip en okkar og voru
yfirleitt kölluð „ryksuguskip" áður en
íslendingar eignuðust sjálfir slík skip."
Fyrsti höfuðlínumælirinn
Ýmsar nýjungar voru reyndar um
borð í Siglfirðingi og þannig varð það
fyrsta íslenska skipið til þess að reyna
síldveiðar í flottroll sem var keypt frá
Hermanni Engel í Þýskalandi. Páll full-
yrðir að með þessum kaupum hafi Sigl-
firðingur orðiö fyrsti viðskiptavinur
Engels á íslandi en seinna, þegar skut-
togarar fóru að nota flottroll, voru þau
nær eingöngu keypt frá Engel. Trollið
var merkilegt tæki en ekki síður var
þetta nýjung vegna þess útgerðin keypti
kapal-höfuðlínumæli frá Decca sem var
að sögn Páls eina slíka tækið sem þá var
í notkun á íslenska flotanum en þetta
var árið 1964. Nú um stundir eru slíkir
mælar og aðrir nemar sem festir eru á
trollið helstu nýmæli sem íslenskir út-
gerðarmenn og skipstjórar eru að nýta
1 2 ÆGIR