Ægir - 01.08.1996, Page 21
sem einnig finnst innan íslenskrar lög-
sögu og líkist margbroddabak í útliti.
Rák er dekkri og greinilegri á marg-
broddabak en fjölbroddabak.
Fundarstaður margbroddabaks.
Geislar B: 32-46 smágaddar; E:
10-14; kviðuggar: 8-10.
Heimkynni: Margbroddabakur finnst
í öllum heimshöfum. í NA-Atlantshafi
hefur hann m.a. fundist undan
Marokkó, við Kanaríeyjar og Asóreyjar. í
ágúst 1995 veiddist einn 59 cm langur
í rannsóknaleiðangri á rs. Bjarna Sæ-
mundssyni á 2267 m dýpi um 120 sjó-
mílur suður af Ingólfshöfða (61°50'N,
16°54'V).
Lífshœttir: Djúpfiskur sem fundist
hefur á 1300-3700 metra dýpi, oftast á
2000-3000 m. Fæða eru botnlægir
hryggleysingjar einkum krabbaflær,
agnir (Mysidea) og burstaormar.
Ætt: Langhalaætt, MACROURIDAE
Brynhali, Nematonurus armatus
(Hector, 1875)
Stœrð: 80 cm.
Lýsing: Allhausstór og langvaxinn
fiskur, þykkur á bol en þynnist og
mjókkar aftur eftir og endar í mjórri
totu eða hala án skýrt afmarkaðrar
sporðblöðku. Trjóna er oddmjó og
lengri en þvermál augna. Augu eru frek-
ar smá. Kjaftur er í meðallagi stór. Tenn-
ur í efra skolti eru í tveimur röðum og
eru tennur ytri raðar stærri. í neðra
skolti er einföld röð tanna. Hökuþráður
er greinilegur. Bakuggar eru tveir og er
sá fremri allhár og annar geisli hans er
sagtenntur. Aftari bakuggi byrjar góðan
spöl aftan við þann fremri og aftan við
fremri rætur raufarugga. Raufaruggi er
þannig aðeins lengri en aftari bakuggi
en báðir ná þeir aftur á halaenda. Eyr-
uggarætur eru framan við fremri rætur
fremri bakugga. Kviðuggar eru undir
fremri rótum eyrugga. Fremsti geisli
kviðugga er langur. Hreistur er broddað.
Litur er brúnn eða rauðbrúnn, ugga-
himnur eru brúnleitar. Kjaft- og tálkna-
hol er svartleitt.
Geislar B: 10-12; E: 19-21; K: 10-11.
Heimkynni: Brynhali finnst í NA-Atl-
antshafi frá Madeira norður til íslands-
miða og A-Grænlands. í NV-Atlantshafi
frá Davissundi suður til Kúbu. í SV-Atl-
antshafi hefur brynhali fundist undan
Montevideo í Úrúgvæ. í sunnanverðu
Indlandshafi, við Nýja-Sjáland og í
Kyrrahafi finnst hann einnig. í ágúst-
mánuði 1995 veiddust fimm brynhalar
í rannsóknaleiðangri á rs. Bjarna Sæ-
mundssyni djúpt suður af landinu. Þrír
veiddust á 2074 metra dýpi suður af
Ingólfshöfða (62°20'N, 17°00'V), einn
veiddist á 2267 m dýpi (61°50'N,
16°54'V) og einn á 1688 m dýpi suður
af Vestmannaeyjum (62°04'N, 20°54'V).
Fiskar þessir voru 14-32 cm á lengd.
Lífshœttir: Miðsævis-, djúp- og botn-
fiskur sem fundist hefur á 280-4700
metra dýpi. Oftast er hann dýpra en
2000 m. Fæða er m.a. ýmis smákrabba-
dýr, bæði botnlæg og sviflæg, skrápdýr,
smokkfiskar og fiskar.
Ætt: Þorskaætt, GADIDAE
ísþorskur, Arctogadus glacialis
(Peters, 1874)
Stœrð: Getur náð meira en 40 cm
stærð.
Lýsing: Langvaxinn fiskur með all-
stóran haus og stór augu, jafnlöng
trjónu. Skoltar eru jafnlangir eða sá
Fundarstaður ísþorks.
neðri teygist aðeins fram. Kjaftur er ör-
lítið skásettur. Sterklegar tennur eru á
gómbeinum. Hökuþráð vantar eða
hann sést ekki. Bakuggar eru þrír og
raufaruggar tveir og eru þeir allir frekar
stuttir og gott bil á milli þeirra. Eyr- og
kviðuggar eru velþroskaðir og eru kvið-
uggar framan við rætur eyrugga. Sporð-
ur er sýldur. Rák er allgreinileg, ósam-
felld og liggur í sveig yfir eyruggum en
er að öðru leyti bein frá öðrum bakugga
og aftur úr.
Litur er dökkleitur, svartbrúnn á baki
og hliðum en kviður er ljósari. Uggar
eru svartir.
Geislar Bl: 10-13; B2: 16-21; B3:
ægir 21