Ægir - 01.08.1996, Síða 25
svo var einnig í þessari veiðiferð þegar
stöðugt þurfti að bæta á kælkikerfið. Vél-
stjórar höfðu fyrst orðið varir við slík ein-
kenni þegar verið var aö taka upp kælivél-
ina þremur árum áður en umrætt slys
varð. Það kom og fram í réttinum að vél-
stjórum var kunnugt um það í upphafi
veibiferðarinnar að kælivélin lak.
Enginn sem kom fyrir réttinn í Hafnar-
firbi kannaðist vib að hafa séð leiðbein-
ingar um meðferð efnisins og fram koma
að viðvörunarmerki sem hafbi verið á
hurð kæliklefans var löngu horfið.
Methylklóríð var á þessum tíma nær
algerlega lyktarlaust en það þótti vara-
samur eiginleiki og því framleiðendur í
vaxandi mæli farnir að blanda lyktsterk-
um efnum, s.s. táragasi, í efnið svo fyrr
yrði vart við leka.
í leiöbeiningum frá Messr. J.&E. Hall,
Limited, framleiðanda kælivélarinnar í
Röðli, segir orbrétt:
„Forðast skal að anda að sér methýl-
klóríð-gasi. Gasið hefur væga sæta lykt og
virkar sem deyfilyf sé því andað inn í stór-
um skömmtum eða yfir lengri tíma. Gasið
hefur skableg áhrif á líkama manna og
veldur óglebi og svima.
Sé gas í andrúmsloftinu og loftræsting
ónóg ætti að nota öndunargrímu sem
dugir fyrir methylklóríb. Venjulegar gas-
grímur duga ekki."
Þegar Röðull lagði að bryggju í Reykja-
vík kom borgarlæknir þegar um borð
ásamt aðstoðarmanni sínum og þeir vom
fljótir ab átta sig á að hér var ekki um
matareitrun eða vímuefni að ræba. Fjórir
þeirra sem verst vom haldnir vom lagðir
inn á Heilsuverndarstöbina við Baróns-
stíg, sem þá var borgarsjúkrahús, en aðrir
fóru heim. Þeim var hins vegar smalab
saman samdægurs og látnir mæta á spít-
alann í rannsókn daginn eftir heimkom-
una og eftir þá rannsókn vom sjö til við-
bótar lagöir inn. Samtals lágu 12 manns
úr áhöfninni á sjúkrahúsi í nokkrar vikur,
þeir sem lengst lágu vom þar í tæpa þrjá
mánuði en þá vom þeir flestir útskrifaðir
og taldir vinnufærir.
Tveir hásetar veiktust sýnu minna en
aðrir en þeir áttu það sameiginlegt að
hafa lítib haldiö sig frammi í vistarverum
þar. Kom þar bæði til sjóveiki og einnig
það ab eftir lát eins hásetans vildi klefafé-
lagi hans ekki dvelja frammí og eftir það
batnaði honum. Þessir tveir eiga þab sam-
eiginlegt að lifa enn.
Rannsóknir árum saman
Læknar á Borgarspítalanum fylgdust
grannt með áhrifum eitrunarinnar á
sjúklingana enda fjöldaslys af þessu tagi
sem betur fer sjaldgæf og því gafst þarna
fágætt tækifæri til þess að rannsaka lang-
tímaáhrif bráðrar methylklóríö-mengun-
ar. Fjölmörg einkenni, bæði líkamleg og
andleg, komu í ljós í hópnum og sum
gengu til baka en önnur ekki. Röðuls-
slysið er eina slysið sinnar tegundar um
borð í íslensku fiskiskipi og mun vera
eitt fárra slíkra tilvika í heiminum en á
stríðsárunum mun hafa orðið áhapp í
sláturhúsi á Selfossi þar sem methylklór-
íð lak af kælikerfi og tveir menn veikt-
ust.
Læknavísindin héldu áfram að fylgj-
ast með hópnum af Röðli eftir að þeir
voru útskrifaðir af spítalanum og farnir
til vinnu á ný og niðurstöður þeirra
rannsókna hafa birst í tveimur erlendum
læknatímaritum. Þeir sem minnst veikt-
ust voru á sjúkrahúsi í eina til tvær vik-
ur, en þeir sem verst voru leiknir lágu
rúmfastir á sjúkrahúsi í allt að fjóra
mánuði.
Tveir styttu sér aldur
Fyrri rannsóknin var gerð af þeim Ósk-
ari Þórðarsyni, Gunnari Guðmundssyni,
Ólafi Bjarnasyni og Þorkatli Jóhannesyni
og birtist í Nordisk Medicin árið 1965 og
þar er skýrt frá því að 20 mánuðum eftir
slysið finni margir en til verulegra eft-
irkasta. Minnkuð vinnugeta, skjálfti í út-
limum, taugakippir í andliti, ribuköst og
minna áfengisþol voru algengustu ein-
kennin. Sálræn einkenni birtust í þung-
lyndi sem leiddi til þess að tveir úr hópn-
um styttu sér aldur. Þrír úr hópnum eru
þegar rannsóknin er gerð úrskurðaðir með
75%-30% örorku. Skemmdir í miðtauga-
kerfi, sem virðast varanlegar, birtast eink-
um í kvíðaköstum, svefnleysi, minnkabri
kyngetu og fleiri einkennum. í niburstöð-
um greinarinnar segir að níu þeirra sem
veiktust eigi við varanleg og alvarleg eftir-
köst að stríða sem einkum birtast í
skemmdum í miðtaugakerfi. Methylklóríð
hljóti því að teljast alvarlegt eitur og hvatt
er til meiri varfærni í umgengni við það.
Allir með merkjanleg eftirköst
13 árum seinna
Seinni rannsóknin var gerð af Gunnari
Guðmundssyni og var birt í tímaritinu
Archives of Environmental Health árið
1976. Þá var enn haft samband viö þá sem
Rætt við skipstjörann á bv Röðli
MORGUNBLAÐIÐ mtti i gær
tal við skipstjórann á bv
Itöðli, Jcns Jónsson, og lýstl
hann alburðunum þannij::
Eftir hádcgl á fimmtudac:
vorum vlð staddlr á Mýra-
Erunni, Jiegar bcra tók á
veikindum i mannskapnum,
cins konar gubbupcst, Við
töldum i íyrstu, að hér værl
ekkl um ncilt alvarlegt að
ncða, heldur einhverja um-
gangsveiki, og fylgdumst með
veikinni scm slikri. A föslu-
dagsmorgun jukust veikind-
ln og voru orðln cinna svæsn-
ust upp úr hádcglnu. Rctt
fyrir kl. 14 höfðum við sam-
band við lækni i Veslmanna-
cyjum. Alcit hann í fyrslu
eins og við, að J»etta væri
einhver umfcrðarveiki og gaf
okkur ýmisleg ráð.
Við íæröum okkur vcslur
eftir og vorum á öræía-
grunni um kl. 21, þegar vcik-
in var komin á mjög alvar-
legt stig hjá sumum, svo aö
við tókum að óttast um lií
Snæbjarnar heitins. Var þá
ekki beðið boðanna, heldur
haldið til Eyja á fullri fcrð
og samband haft við lækni á
sluttum íresti.
Um kl. 22 lézt Snæbjðrn
eftir stutt dauðastrið. Um mið
nætti urðum við hræddlr um
llf annnrs, scm var fnrinn að
íá krampafiog. Var þá
stöðugt samband haft við
lækni og bcðið um aö Jæknir
yrði scndur til móts viö okk-
ur. Kom héraðslæknlrinn I
Veslmannaeyjum með haín-
sögubátnum og hlttust skip-
in vestur undan Portlandi
milli kl. 4 og 4.30 á laugar-
dagsmorgun. Þegar tU Eyja
kom, voru tveir sendir í
sjúkrahúsið og eru þar enn
þungt haldnir nú kl. 15.30,
nðrir á balavegi.
Þcss má gcta, að það wru
cingöngu menn, scm búa
frammi i, sem tóku veikina,
nema cinn annar fckk væg
einkcnni. Allir hásetarnir
nema tveir urðu veikir. Sum-
ir eru nú orðnir góðir, en
aðrir á batavegi.
Ekki er enn vitað, hvað
veikinni olli, en það roun
vera e. k. eitrun, annað hvort
1 mat, vatni eða jainvel and-
rúmslofti.
Röðulsslysið
varð mikið
fréttaefiú og
birtust um það
fréttir í blöðum
dag eftir dag,
m.a. þessi sem er
úr Mogganum.
ÆGIR 25