Ægir - 01.08.1996, Síða 30
vitum ekki hvað við fáum
Yarmouth F-101 siglir í eitt afþremur skiptum á v/s Þór út af
Austurlandi.
Lincoln F-99 siglir á Ægi út af Austurlandi
i afmælisgjöf
segir Helgi Hallvarðsson
skipherra Landhelgisgæslunnar
„Við höfum lýst þeirri skoðun okkar að brýnt sé að
endurnýja skipakost Landhelgisgæslunnar í takt við
tímann og þær auknu kröfur sem gerðar eru. Nýtt
varðskip eða yfirlýsing stjórnvalda um slíkar fram-
kvæmdir væri því besta afmælisgjöf sem við gætum
hugsað okkur,“ sagði Helgi Hallvarðsson, skipherra
hjá Landhelgisgæslunni, í samtali við Ægi. Land-
helgisgæslan hefur í sumar minnst þess með ýmsu
móti að 70 ár eru liðin frá stofnun hennar. Sögusýn-
ing var haldin við góðar undirtektir og saga Land-
helgisgæslunnar verður gefin út í haust. Hin eigin-
lega afmælisveisla verður ekki haldin fyrr en 30
ágúst ■ sumar og þá má ætla að formlegar afmælis-
gjafir verði afhentar svo ekki er enn útséð um hvort
ákvörðunar um endurnýjun skipakosts er að vænta.
Helgi í meira en hálfa öld
Landhelgisgæslan á aö baki litríka sögu sem er jafnframt
samofin sögu íslensku þjóðarinnar sem sjálfstæðrar fiskveiði-
þjóðar. Þrjú þorskastríð hafa verið háð, fyrst við útfærsluna
1958 þegar landhelgin var færð út í 12 mílur, þá 1972 þegar
fært var út í 50 rnílur og loks 1975 þegar landhelgin var færð
út í núverandi stærð sem er 200 mílur. Helgi Hallvarðsson
kom fyrst um borð í varðskip 30. júlí sumarib 1946 svo hann
á hálfrar aldar starfsafmæli um þessar mundir. Helgi tók þátt
í öllum þremur þorskastríðunum, fyrst sem stýrimaður og
sem skipherra í tveimur þeim síðari.
„Upphafið var þegar björgunarskipið Þór kom til Vest-
mannaeyja árið 1920 og það má þannig segja að Vestmann-
eyingar hafi orðið upphafsmenn íslenskrar landhelgisgæslu
en Danir höfðu annast gæslu hér við land þá um árabil."
Landhelgisgæslan hefur alltaf unnið störf sem stundum
hafa sætt mikilli gagnrýni bæði frá sjómönnum og almenn-
ingi. Sjómenn vilja stundum ekkert af Gæslunni vita en vilja
helst hafa hana við hendina þegar eitthvað bjátar á.
„Það fylgir okkar starfi að vera í senn hetjur og skúrkar og
það er yfirleitt hlutverk fjölmiðla að setja okkar í hlutverk-
ið," segir Helgi. „Við vorum þjóðhetjur þegar þorskastríöin
stóðu en nú erum við stríöshetjur á friðartímum."
30 ÆGIR