Ægir - 01.08.1996, Page 33
jólafrí þá var hann alltaf meö jólaeplin og appelsínurnar fyr-
ir kaupfélagið meðferðis. Þetta var sjaldséður varningur hér
áður fyrr en hann skildi alltaf kassa af hvoru eftir um borð til
glaðnings fyrir áhöfnina."
Fylgst með neyðarsendingum
„Við þurfum stórt skip til þess að fylgjast meö djúpsjávar-
miðunum þó minni skip geti sinnt eftirliti á grunnmiðum,"
segir Helgi.
„Það er hægt að fylgjast með staðsetningu skipa gegnum
gervitungl og við höfum verið að gera tilraunir með slíkt í
samvinnu við skipin sem eru að veiðum á Flæmingjagrunni
og hefur gengið vel.
Með aukinni tækni hefur samstarf okkar við aðrar þjóðir
um leit og björgun stóraukist. Gervihnettir nema hverja ein-
ustu neyðarsendingu. Það heyrast þúsundir slíkra sendinga í
hverjum mánuði en sem betur fer er 98% þeirra vegna bilun-
ar í tækjabúnaði eða vankunnáttu. Það hefur samt komið
fyrir að við sendum flugvél djúpt út á Reykjaneshrygg vegna
slíkrar sendingar sem síðan kom í Ijós að var vegna bilunar í
tækjum."
Bættur flugfloti þýðir ekki meiri gæslu
Má segja að flugfloti Gæslunnar sé í góðu horfi eftir til-
komu nýju þyrlunnar?
„Já, það er óhætt að segja það. Hitt er svo annað mál að
þyrlurnar eru einkum notaðar við leit og björgun. Notkun
þeirra við björgun á landi hefur aukist gífurlega, einkum á
sumrin með auknum ferðamannastraumi. Þetta er þarft starf
en þetta er ekki landhelgisgæsla. Þetta eru góð og örugg tæki
en mjög dýr í rekstri og því eðlilegt að greiðsla komi fyrir að
sækja slasaða ferðamenn upp um fjöll og firnindi, svo slíkar
ferðir komi ekki niður á annarri starfsemi Gæslunnar. Engin
greiðsla er innheimt ef um líf og dauða er að tefla."
Nýtt varðskip kostar tvo milljarða
En hvaö kostar nýtt varðskip eins og það sem Landhelgis-
gæslan lætur sig dreyma um?
„Við höfum mikiö horft á dönsk eftirlitsskip sem við telj-
um að myndu henta afar vel. Þetta eru stór og öflug skip
sem eru hönnuð til að sigla sama sjó og við, með jafnvægis-
tönkum svo þyrlan geti lent á þeim í slæmu veðri og búin til
siglinga í ís. Slíkt skip kostar um tvo milljarða, sem er vissu-
lega mikið fé, en rétt er aö hafa í huga að slíkt skip mætti
hugsanlega samnýta með fleiri stofnunum, s.s. Hafrann-
sóknastofnuninni og Veðurstofu. Mér er ekki kunnugt um
hvort fýsilegt sé að kaupa notað skip enda hefur það ekki
verið kannað. Þetta nýja skip kostar rúmlega eins og einn
frystitogari. Okkar skipakostur er úreltur og gamail og ef við
viljum svara kröfum tímans verðum við að fara að huga að
þessum máium. □
Sendum stjórn og starfsfólki
Landhelgisgœslu íslands
drnaöaróskir
í tilefni 70 ára afmœlisins
um leiö og viö þökkum samstarfiö
á liönum árum.
JOKLAR HF.
AÐALSTRÆTI 8 P.O. BOX1351
121 REYKJAVÍK SÍMI 561 6200
WORKING ABROAD
Are you looking for a different and better life?
Now the book is here which gives you detailed information about work permits, wages, working and lodging conditions, visas, travel expenses,
etc. abroad. You will also find addresses to companies in
Europe, U.S., Canada, West Indies, Australia and the Far East, looking for employees within most professions.
Interested? If yes, ask for our free brochure, which will give you further information about the book, by sending us an envelope with your name
and address on it. For a more rapid delivery send us an international coupon that can be bought in all postoffices.
You can also buy the book direcly from us by paying N-KR 200,- through an international moneyorder to:
G.IMPORT, GUNHILD GR0NVOLD, 2436 VÁLER, NORWAY.
Note. We're no employment agency!
ÆGIR 33