Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1997, Blaðsíða 5

Ægir - 01.12.1997, Blaðsíða 5
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Bjarni Kr. Grímsson, fiskimálastjóri: Fiskveiðistjórn, sj ávarútvegsstefna / / l / llir eru sammála um að yj IJ stjórna beri aðgengi að auðiindum sjávar. Með þessu er átt við að ekki megi leyfa frjálsa, óhefta sókn til fiskveiða eða annarra veiða á sjávardýrum. Það er hins vegar deilt um hvernig þessi stjórn eigi að vera og þá hvaða afleiðingar veiðistjórnunin hefur á efnahag og búsetu í landinu. Á árinu 1983, þegar við höfðum verið með takmarkaða sóknarstýringu í nokkur ár, var ákveðið að setja nokkrar helstu fisktegundir í kvóta. Síðan hefur margt komið til og kvótakerfið verið aukið og lagfært með ýmsum hætti. En einnig hafa önnur atriði breyst, t.d. hefur allt verðlagskerfi sjávarútvegsins tekið endaskiptum og sjóðakerfi sjávarútvegsins hefur líka verið nánast lagt af. Þannig hafa ýmsar aðrar aðstæður í sjávarútvegi breyst. Það er ekki bara kvótakerfið sem er að valda breytingum, breytingum sem menn deila um hvort eru af hinu góða eða illa. Menn hafa nánast sett allar breytingar í sjávarútvegi siðustu tveggja áratuga undir hatt fiskveiðistjórnunar og dæma hana síðan hæfa eða óhæfa og ekkert virðist koma þar á milli. Á síðasta Fiskiþingi var samþykkt tillaga um að leggja af viðskipti með leigukvóta. Nú koma menn og segja að einn landshluti fari verr út úr slíkri ráðstöfun heldur en annar og sömu rök heyrðust á þeim tíma þegar kvótakerfið sjálft var tekið upp. Er ekki nær að skoða hvers vegna einn landshluti hefur misst sinn kvóta eða hefur ekki kvóta, en liggur að bestu fiskimiðum landsins. Var rangt gefið í Mynd: Pálmi Guömundsson upphafi eða hafa menn glutrað niður sínum kvóta? Hvers vegna er fólk að flytja af landsbyggðinni og hvernig eiga ungir menn að koma inn í atvinnureksturinn þannig að eðlileg endurnýjun eigi sér stað? Eru menn ánægðir með núverandi kerfi og vilja ekki breyta því? Slíkar spurningar hljóta að koma upp og ekki eru menn ánægðir ef þeir leggja fram tillögur til breytinga. Stjórnvöld koma að þessu máli. Þau hafa sett lög um stjórnun veiða og það gilda ákveðnar reglur um hverjir megi veiða, hvar og hvenær. Hverjir og hvernig meðhöndla eigi fiskinn o.fl. Og þegar menn segja A þá kemur óhjákvæmilega B á eftir. Þannig hafa stjómvöld sagt A með sínum laga- og reglugerðarsetningum og því kemur B- ið næst. En hvernig B? Stjórnvöld þurfa að láta hóp manna úr greininni og sérfræðinga víða að skoða atvinnugreinina sjávarútveg og hvernig þeir sjái þróun hennar í næstu framtíð. Þróun með tilliti til umhverfis atvinnugreinarinnar í sem víðustum skilningi. Bæði í tæknilegum skilningi, efnahagslegum og líffræðilegum. Síðan þarf að aðlaga lagalegar aðstæður okkar að þeirri framtíðarsýn þannig að sjávarútvegurinn fái nýja flík, en gangi ekki stöðugt í stagbættum flíkum. Þetta er sjávarútvegsstefna framtíðarinnar sem verður að hafa að leiðarljósi ýmis pólitísk markmið, en um leið verði vörðuð leið til að auka lífskjör okkar á þessu landi og það gerum við ekki nema að sjávarútvegurinn uppfylli allar gæðakröfur og sé rekinn með hagnaði. Þá sé ekki hallað á einstaka þætti í því ferli sem hefst með útbúnaði skips til veiða og lýkur í maga neytandans. ÆGIR 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.