Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1997, Blaðsíða 51

Ægir - 01.12.1997, Blaðsíða 51
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI m gi i| Wrir" 'kJ Frá Akureyri á síðari hluta 19. aldar. •svo þéttir, að lýsi gat hvergi burtu dropið. Vandlega gerð lok voru á öllum lifrar- kössunum. Nœstu rúm við skýlin í skut og barka voru œvinlega auð. Kom aldrei fýrir, að þau vœru fyllt afhákarli eða lif- ur. Þetta voru suturrúmin. Þar mátti ausa á bœði borð, efmeð þurfti. „Rúffuðu" vetrarskipin voru á viss- an hátt undanfarar fyrstu íslensku þil- skipanna og eins og nánar verður sagt frá síðar, var sumum þeirra breytt og settar í þau þiljur þegar þilskipaútgerð hófst við Eyjafjörð. í greinunum um þilskipaútgerð á Vesturlandi og Vestfjörðum var þess getið, að þar voru þilskip undantekn- ingalítið í eigu kaupmanna og voru flestir hinna fyrstu þilskipaútgerðar- manna í Vestfirðingafjórðungi íslensk- ir. Á Norðurlandi var þessu öðruvísi farið og sá, sem fyrstur hélt þilskipum til veiða frá norðlenskri höfn var danskur kaupmaður, Chr. Thaae. Hann hóf verslun á Djúpavogi um 1830 og fimm árum síðar á Raufar- höfn. Þangað sendi hann tvö þilskip, líkast til skömmu fyrir 1840, og skyldu þau stunda bæði þorsk- og hákarla- veiðar. Hét annað skipið Söblomstret en hitt Mínerva. Thaae lagði mikla áherslu á að afla eins mikils lýsis og mögulegt var, enda gaf sala þess drjúg- an skilding í aðra hönd, og segir sag- an, að hann hafi reist hús yfir iifrar- bræðsluna á Raufarhöfn. Heimildir um þilskipaútgerð Thaaes eru brotakenndar, en svo er að sjá sem hann hafi gert út fjögur skip, þegar mest var, og árið 1852 gerði hann út þrjú þilskip. Auk verslananna á Rauf- arhöfn og Djúpavogi rak hann um skeið verslun í Siglufirði en engar heimildir eru fyrir því að hann hafi gert út þilskip þaðan. Ekki er ósennilegt að útgerð Thaaes hafi haft nokkur áhrif á Norðlendinga, sem stunduðu hákarlaútgerð, en vitað er að Þorsteinn Daníelsson á Skipalóni við Eyjafjörð dvaldist um skeið á Rauf- arhöfn við smíðar fyrir Thaae. Frumherjinn Þorsteinn Daníelsson, kom- inn á efri ár. Hann gerði fyrstur íslend- inga lít þilskip. Með Þorsteini á Skipalóni, eða Dan- íelsen á Lóni, eins og hann var oft kallaður, er nefndur til sögu sá maður, sem fyrstur íslendinga gerði út þilskip til fiskveiða á Norðurlandi. Þorsteinn var smiður góður, efnabóndi, og varð fyrstur Norðlendinga síðan á miðöld- um til að flytja inn og nota vagn á hjólum. Hann gerði út opin skip til hákarlaveiða og veturinn 1851-1852 réðst hann í að breyta vetrarskipi, sem hann átti og Fönix hét. Til liðs við sig fékk hann nágranna sinn, Flóvent Sig- fússon á Ósi í Hörgárdal, og settu þeir þiljur í Fönix og breyttu honum í þil- skip. Mun skipið hafa gengið til veiða vorið 1852, en þá og jafnan síðan var það nefnt Orri. Hermir sagan að sú nafngift hafi stafað af því að þeir félag- ar, Þorsteinn og Flóvent, hafi háð svo margar „orrahríðar" við smíðina að nágrönnum þeirra hafi þótt einsýnt að gefa skipinu þetta nafn. Útgerð Orra markaði tímamót í eyfirskri og íslenskri útgerðarsögu. Með henni hófst saga „bændaútgerð- arinnar" við Eyjafjörð og þar með einn merkasti þátturinn í norðlenskri sögu 19. aldar. Um hann verður nánar fjallað í næstu grein. Höfundur er sagnfræðingur. Greinin er í flokki greina um þilskipaútgerð sem Jón Þ. Þór hefur tekið saman fyrir ÆGI ÆGillR 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.