Ægir - 01.12.1997, Blaðsíða 14
Mikilvægt að taka mið af
umhverfísumræðunni
- rætt við Steinar Magnússon, tæknistjóra Sœplasts hf, um vöruþróun
og hvernigfyrirtœkið hefur brugðist við spurn eftir endurvinnanlegum vörum
Steinar Magnússon, tœknistjóri Sœpiasts hf., heldur hér á hlutum
úr tveimur trollkúlum, annars vegar er hvíti hlutinn sem er
helmingur djúpsjávarkúlu og hins vegar guli helmingurinn sem er
hefðbundin trollkúla. Glögglega má sjá muninn á veggþykktinni í
kúlunum. Myndir: JÓH
Sœplast hf. á Dalvík hefur að und-
anfórnu komið fram með tiýjar
framleiðsluvörur sem eiga sér að baki
langan feril í vöruþróun. Um er að
rœða trollkúiu úr plasti sem þolir að
fara niður á 2000 metra dýpi og hins
vegar eru plastfiskikör sem eru end-
urvinnanleg. Steinar Magnússon,
tœknistjóri Sœplasts hf., segir í við-
tali við Ægi að cetíð verði að reikna
með löngum tíma íþróun vöru - veg-
urinn sé langur frá hugmynd að full-
þróaðri vöru út á markaði og taka
jmrfi tillit til margra þátta á þeirri
leið. Til að mynda umhverfissjónar-
miða sem œ meira fari fyrir í umrœð-
unni og framleiðslufyrirtœki þurfi að
mceta.
„Jú, það er rétt að við finnum fyrir
umhverfisumræðunni og það er líka
vegna þess að við höfum fram til þessa
ekki framleitt fiskikör sem hafa verið
endurvinnanleg. Þar af leiðandi vilja
menn leggja meira á sig til að gera
körin endurvinnanleg enda er endur-
vinnsla í plastiðnaði í heiminum orð-
in mjög algeng og þykir sjálfsögð. Kör-
in sem hér hafa verið framleidd í
áraraðir eru úr tveimur ólíkum plast-
efnum og því ekki hlaupið að því að
endurvinna þau. Körin sem við höfum
þróað á síðustu árum og komið á
markað eru úr einni gerð plastefna og
ekkert vandamál að endurvinna þau.
Fyrirtæki i Danmörku hefur tekið frá
okkur sýnishorn og svarað því til að
þessa gerð fiskikera verði auðvelt að
endurvinna.
í hinu hefðbundna Sæplast-keri er
polyefilen í veggjum kersins en í hol-
rúminu á milli þeirra er fyllt upp með
polyurethan. Við höfum nú fært hluta
af framleiðslunni yfir í endurvinnan-
lega kerið en það er eingöngu fram-
leitt úr polyefilen. Mér finnst líklegt
að þróunin haldi áfram í þessa átt og
að í tímans rás verði öll okkar ker
komin yfir í endurvinnanlegu gerðina
en það er erfitt að spá fyrir um fram-
tíðina," segir Steinar og bætir við að
þó svo að á sínum tíma hafi polyuret-
han verið litið
hornauga sökum
þess að vera
óvinveitt óson-
laginu þá hafi
framleiðendur
efnisins breytt
innihaldi þess
þannig að nú sé
það skaðlaust fyr-
ir lofthjúpinn.
„Stjórnvöld settu
fyrir nokkru
reglugerðir og lög
sem takmörkuðu
losun ósoneyð-
andi efna. Innan
uppgefins frests
náðu framleið-
endur polyureth-
an-efna og einnig
notendur
polyurethan að
aðlaga sig þessum
nýju leikreglum.
Þetta er gott
dæmi um að þeg-
ar stjórnvöld
setja þrýsting á
efnaiðnaðinn þá ná menn oftast að
leysa úr sínum vandamálum og oft
standa menn uppi með betri vöru ,"
segir Steinar.
Vaxandi áhugi kaupenda fyrir
endurvinnanlegum vörum
Steinar segir að þrátt fyrir að farið sé
út í framleiðslu á endurvinnanlegum
fiskikerum þá komi fyrirtækið ekki til
með að ráðast sjálft í endurvinnslu. I
14 ÆGIK