Ægir - 01.12.1997, Qupperneq 28
Ari Eiríksson:
Frysting á loðnu
með köfnunarefni
YJiskvhinslufyrirtœki á íslandi
-T hafa fjárfest fyrir milljarða
króna íplötufrystibúnaði fyrir loðnu
og síld á síðustu misserum og hafa
sum þeirra treyst mjög á að geta fryst
loðnu fyrir Japansmarkað. Vegna
stífra krafna kaupenda er loðnan
ekki í hœfu ástandi fyrir þennan
markað nenia í örfáar vikur á hverri
vertíð og þegar illa gengur að ná loðn-
unni gefast aðeins örfáir dagar til að
frysta hana. Afkastagetan íþessum
tiýja frystibúnaði er því mjög illa
nýtt, öfugt við þau frystikerfi sem
landvinnslan hefur hingað til verið
að nota árið um kring.
Undirritaður fékk þá hugmynd um
síðustu áramót að hugsanlega mætti
reyna að „safna upp" frystigetu fyrir
loðnuvertíðina, þannig að hægt væri
að frysta mikla loðnu á stuttum
tíma með ódýrari búnaði en
hefðbundnum plötufrystum. Eft-
ir nokkrar misjarðbundnar
vangaveltur var frysting með
köfnunarefni valin til frekari
skoðunar og nú í surnar vann ég
við athugun á möguleikum til að
framleiða og geyma fljótandi
köfnunarefni fyrir loðnu- og
síldarfrystinguna hér á landi.
Verkefnið var styrkt af Nýsköpunar-
sjóði námsmanna, en það var jafn-
framt lokaverkefni mitt í vélaverk-
fræði við Háskóla íslands.
Nokkrar fiskvinnslur hér á landi
hafa fryst fisk með köfnunarefni, og
sem dæmi má nefna fiskverkun Jónas-
ar Ágústssonar í Hafnarfirði og Strýtu
á Akureyri. Frystingin fer yfirleitt
þannig fram að fiskurinn er látinn
ganga á færiböndum í gegnum lokað
rými með loftblæstri og fljótandi
köfnunarefni úðað inn í rýmið. Köfn-
unarefnið sýður við tæplega 200 gráðu
frost, og því er auðveldlega hægt að
halda 100 stiga frosti eða meira í loft-
inu sem blæs um fiskinn.
Aðferð sem fer vel
með hráefnið
Fljótandi köfnunarefni kostar allmarg-
ar krónur hvert kíló og að jafnaði þarf
að láta ríflega eitt kíló af því sjóða og
tapast út í andrúmsloftið fyrir hvert
fiskkíló sem er fryst. Þetta gerir aðferð-
ina dýra en hún þykir hins vegar fara
mjög vel með hráefnið og er því oft
notuð í frystingu á dýrum afurðum
þar sem kostnaðurinn við köfnunar-
efnið næst til baka í hærra afurða-
verði.
Köfnunarefni er skaðlaust efni á
gasformi, enda eru um 79% af and-
rúmsloftinu köfnunarefni. Engin hrá-
efni þarf til framleiðslunnar önnur en
andrúmsioft og rafmagn og hún getur
verið nánast algjörlega mengunarlaus
ef rétt er að málum staðið. Flókinn og
sérhæfðan tækjabúnað þarf við þessa
framleiðslu, enda er ekki hægt að ná
200 gráðu frosti með neinni einfaldri
kælirás.
ísaga hf. hefur framleitt fljótandi
köfnunarefni samhliða súrefnisfram-
leiðslunni í verksmiðju sinni í Reykja-
vík og innlendar fiskvinnslur kaupa
nú megnið af því köfnunarefni sem
verksmiðjan ræður við að framleiða. i
sumar grófhannaði ég framleiðsluferli
fyrir köfnunarefni sem er verulega frá-
brugðið því ferli sem þar er notað, og
kannaði auk þess mögulegar útfærslur
á stórum tönkum til að geyma köfn-
unarefnið.
Fyrirtæki sameinast
um köfnunarefnis-
framleiðsluna
Nú hljómar það eflaust undar-
lega að ætla að frysta jafn ódýr-
an fisk og loðnu með einni
dýrustu frystiaðferð sem tíðkast
í matvælaiðnaðinum, og því
ætla ég að reyna að útskýra
hvernig ég hef hugsað mér að aðferðin
yrði útfærð og af hverju hún gæti ver-
ið hagkvæmari en venjuleg plötufryst-
ing. Til að lesendur átti sig betur á
hlutunum verður tekið raunhæft
dæmi um hvernig nokkur fyrirtæki
„Reikna má með að hver vinnsla
geti fryst 1000 tonn á sólarhring
miðað við að 25% af
loðnunni séu frystihœf."
28 mm