Ægir - 01.03.1998, Side 11
^Tækni og fiskvinnsla
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Á sama hátt og tölvutœknin fcerist í ce
vaxandi mceli inn í fiskvinnslumar sjálfar
þá gegna tölvumar líka miklu tnáli við
hönnun á fiskvinnslubúnaði nútímans.
svo ýkja mörgum árum. Hörður leggur
áherslu á að allur þessi búnaður geti
aldrei nýst til fulls nema notendur
hans hafi haefni til að nota hann í
daglegri vinnslu og það sýni dæmin að
íslenskum fiskvinnslumönnum sé vel
treystandi fyrir nýjungunum.
„Við byggjum mikið á því í okkar
framleiðslu að búnaðurinn sé sjálfvirk-
ur en jafnframt traustur og standist
álagið í vinnsluhúsunum. Við höfum
starfað í þessari framleiðslu í 15 ár og
mörg þau tæki sem við settum upp á
fyrstu árum okkar eru enn í notkun og
hafa staðist álagið og það erum við
ánægðir með," segir Hörður.
Stökkbreytingar
ekki fyrirsjáanlegar
Marel hf. beitir þeim aðferðum að
funda með leiðandi fyrirtækjum í fisk-
vinnslunni og reyna á þann hátt að
laða fram framtíðarsýn og út frá því
eru svo stigin skref sem menn telja
skynsamlegust til framþróunar í grein-
inni. Undirbúningsvinna af þessu tagi
segir Hörður að hafi verið undanfari
þeirrar kynslóðar af flæðilínum sem
Marel hf. hefur sett upp á undan-
gengnum misserum, t.d. hjá ÚA, Snæ-
felli og ísfélaginu í Vestmannaeyjum.
Þeirri spurningu hvort fyrirsjáanlegar
séu stökkbreytingar, jafnvel að flæði-
línurnar víki fyrir einhverju öðru svar-
ar Hörður þannig að stórar breytingar
séu sjaldnast fyrirsjáanlegar.
„Flæðilínur eru ekki bara flæðilínur,
það koma nýjar kynslóðir og þær geta
verið gjörólíkar frá einni til annarrar.
Við getum líkt þessu við að að menn
tali um bíla eins og þeir séu allir eins.
Við höfum lagt áherslu á verulega
bætta vinnuaðstöðu við flæðilínurnar,
jafnframt stórauknum afköstum, betri
hráefnismeðferð og auðveldara eftirliti
og stjórnunarmöguleikum.
En hvað varðar stökkbreytingar þá
er það svo í tækniþróun að manni
verða stórar breytingar jafnvel ekki
ljósar fyrr en eftirá og þótt ég geti ekki
sagt til um stökkbreytingar þá er ég
ekki í nokkrum vafa um að hér á landi
á eftir að verða áfram stórfelld tækni-
þróun í fiskiðnaði. Án vafa munu ís-
lensk fiskvinnsluhús verða áfram í far-
arbroddi í tæknivæðingu í heiminum
og það er ekkert ótrúlegt að menn telji
hagkvæmt að stokka upp fyrirkomulag
og búnað á fimm til sex ára fresti til að
ná fram mesta mögulegum árangri á
hverjum tíma. Kröfurnar breytast sí-
fellt og tækninýjungarnar sömuleiðis."
Stöndum framarlega í
tækniþróuninni
Orð framkvæmdastjóra þróunarsviðs
Marels hf. um stöðu íslenskrar fisk-
vinnslu á heimsmælikvarða ef horft
eru til tæknivæðingar eru mjög upp-
örvandi.
„Ég tel nokkuð óhikað að við séum
í fremstu röð. íslensk fiskvinnsla er yf-
irleitt vel rekin og á undanförnum 3-4
árum höfum við verið að stíga framar í
tæknimálum í greininni og tekið um
leið stærri hluta af kökunni," segir dr.
Hörður Arnarson framkvæmdastjóri
þróunarsviðs Marels hf.
REVTINGÖRr"
Samningur um
umhverfisstjórnun
Krossanes hf. og Rannsókna-
stofnun Háskólans á Akureyri hafa
gert með sér samstarfssamning um
faglega ráðgjöf og rannsóknir er lúta
að stefnumótun í umhverfisstjórnun.
í fyrstu verður lögð áhersla á val á
búnaði til hreinsunar á útblæstri frá
Krossanesverksmiðjunni. Samning-
urinn gildir til júníloka árið 2000.
Markmiðið með samstarfssamn-
ingnum er að ná enn betri tökum á
umhverfismálum Krossanessverk-
smiðjunnar svo hún megi verða í
fararbroddi sambærilegra fyrirtækja
þegar árið 2000,“ eins og segir í
samningnum. í því augnamiði verð-
ur aðgerðunum einkum beint að
fjórum sviðum: ímynd, tækni, mæl-
ingum og gæðatryggingu.
Grandi hagnaðist um
hálfan milljarð
Grandi hf. og dótturfélag fyrir-
tækisins, Faxamjöl hf. skiluðu sam-
tals 516 milljónum króna í hagnað á
síðasta ári. Rekstrartekjur félaganna
námu samtals tæpum 4000 millj-
ónum króna þannig að hagnaður er
um 13% af veltu. Athygii vekur að
veltufé frá rekstri jókst um 18% á
árinu 1997, fór úr 459 milljónum
króna í 686 milljónir.
Rekstrartekjur jukust um 2% en
rekstrargjöld félaganna lækkuðu
hins vegar um 4%.
Mm ii