Ægir - 01.06.1999, Blaðsíða 9
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEOI
Grásleppuvertíðin:
Dæmi um verð
undir 40 þúsund
krónum fyrir
hrognatunnuna
Orn Pálsson, framkvœmdastjórí
Landssambands smábátaeig-
enda, segir horfumar fyrir nœstu grá-
sleppuvertíð ekki alltofbjartar, sér í
lagi efveiðin í heiminum fari yfir
25.000 tunnur í ár. Að líkindum verð-
ur veiðin innan við 5.000 tunnur hér
á landi á vertíðinni sem er að Ijúka.
„Það voru margir sem fóru að þeim
tilmælum okkar að róa ekki í ár og
selja ekki á verði undir 41.000 krónum
fyrir tunnuna af hrognum. Samt sem
áður höfum við upplýsingar um að
einstöku tilfellum hafi menn selt
hrogn fyrir neðan þetta verð og það er
að mínu mati slæmt fyrir framhaldið.
Hitt er annað að auvitað er skiljanlegt
að menn freistist til að selja þó að
verðið sé lágt enda standa margir grá-
sleppukarlanna frammi fyrir mikilli
sóknarskerðingu í annan afla og þurfa
að skapa sér tekjur til að mæta þeirri
skerðingu," segir Örn.
Nú líður að því að í ljós komi hver
grásleppuveiðin verður á helstu veiði-
svæðum í heiminum og segir Örn að
ef heildarveiðin fari ekki yfir 25.000
tunnur þá geti verð þokast á nýjan leik
upp á við. Verði veiðin á hinn bóginn
mun meiri þá sé það ávísun á lágt verð
á næstu vertíð og áframhaldandi sam-
drátt hjá grásleppukörlum.
REVTINGUR
Eftirlit með aðstoð
gervihnatta
Gervihnettirnir fylgjast nú með
veiðum norska rækjuflotans á
Flæmska hattinum. I sumar verður
einnig fylgst í tilraunaskyni með 40
fiskiskipum sem veiða á ES svæðinu
og ætlunin er að fljótlega verði
fylgst þannig með öllum skipunr
sem veiða í norskri lögsögu.
Við eftirlitið verða gervihnettirn-
ir Inmarsat-C eða Argos notaðir.
Um það bil 150 norsk skip hafa nú
búnað til gervihnattaeftirlits sem
kostar um 940 þúsund ISK í hvert
skip.
Ætlað er að þetta eftirlit stuðli
að því að farið verði eftir lögum
sem gilda um fiskveiðar en viður-
lögum vegna brota verður þó ekki
beitt við skip sem taka þátt í til-
rauninni í sumar. Einnig er hér um
alsjálfvirkt öryggiseftirlit að ræða.
Tilraunir hófust 1. júní síðastlið-
inn en eftirlitið hefst formlega 1.
janúar árið 2000.
Astæða er til að ætla að gervi-
hnattaeftirlitið sé aðeins byrjunin á
því sem koma skal. Rafeindaveiði-
dagbók gæti orðið næsta skref því
að með þeirri upplýsingatækni sem
nú þegar er tiltæk geta starfsmenn
eftirlitsins í landi séð hversu mikið
er í trollinu hverju sinni.
(Fiskaren)
ÁGJR 9