Ægir - 01.06.1999, Blaðsíða 18
Reykjavík!_________________
Kvótamálin eru krufin á morgnana
á Kaffivagninum á Grandagarði:
„Oft hávaði þegar
kvótamálin ber
á gómau
Kaffivagninum á Grandagaröi veröur
ekki sleppt úr þegar talaö er um sjávar-
útvegsborgina Reykjavik. Á Kaffivagnin-
um eru bœöi sjávarútvegsmálin og
önnur stórmál heimsins rœdd og segir
Arna Stefánsdóttir, framkvœmdastjóri
Kaffivagnsins, aö oftsé heitt i kolunum
við borðin þegar rœtt er um kvótamálin.
„Hingað koma sjómenn, útgerðar-
menn, flugstjórar, sveitarstjórnar-
menn og alls kyns fólk. Trillukarlarnir
og sjómennirnir eru fjölmennir á
morgnana og í hádeginu eiga útgerð-
armenn
sitt fasta
borð,"
segir Arna
en opið er á
Kaffivagnin-
um frá kl. 6 á
morgnana.
Þeir sem taka
daginn snemma
við Reykjavíkur-
höfn geta því
fengið nasaþefinn
af málum dagsins á
JtgjíHÉB
/> i / n
| Jg . }[ji
Þegar Ijósmyndara Ægis bar að garði í Kafpvagninum var reyndar rólegt en á morgnana
er mesta fjörið, skoðanamiklir sjómenn og aðrir áhugamenn um sjávarútveginn mceta til
leiks og skiptast á skoðunum yfir kafflbolla áður en vinnudagur hefst.
Kaffivagninum og þannig hefur það
verið um langan tíma því Kaffivagn-
inn hefur starfað um 45 ára skeið og er
væntanlega meðal elstu starfandi veit-
ingahúsum í Reykjavík.
"Vegna þess að við erum hér úti á
Grandagarði þá þurfa gestir okkar að
hafa fyrir því að komast hingað en
það breytir því ekki að margir koma 4-
5 sinnum á dag. Ekki hvað síst er það
líka landsbyggðarfólkið sem leggur
leið sína hingað og það á kannski
skýringu í því að meðal okkar föstu
viðskiptavina eru útgerðir utan af
landi sem eru með skip sín hér í höfn
og þekkja okkur þar af leiðandi. En
heilt yfir þá eru viðskiptavinirnir úr
öllum þjóðfélagshópum þó vísast sé
fjölmennastur sá hópur manna sem
tengist sjónum með einhverjum
hætti," segir Arna.
i8 mm