Ægir - 01.06.1999, Blaðsíða 47
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Vindubúnaður
í Svanborgu hefur verið komið fyrir
fullkomnum vindubúnaði fyrir drag-
nótaveiðar sem Ósey hf. framleiðir.
Um er að ræða 9 tonna vindur af gerð-
inni MS25. Þá em í skipinu 3,2 tonna
ankerisvinda og 2,8 tonna voðarvinda
og 1,6, tonna netavinda.
Stýring á vindubúnaðinum er þró-
aður í samvinnu Óseyjar og Vaka hf.
Um er að ræða SeineTec mæli frá Vaka
sem mælir átak og hraða fyrir drag-
nótavindurnar og sömuleiðis er með
búnaðinum hægt að fylgjast með
þrýstingi á vökvakerfi, sem og snún-
ingi á spilum.
Mikið af tækjum í brúnni
Nokkur fyrirtæki komu að málum í brú
skipsins og er það vandlega búið tækj-
um. Sínus ehf. sá um frágang á tækjum
og loftnetum og frá fyrirtækinu er
einnig kominn dýptarmælir af gerð-
inni Skipper, tvö GPS tæki af gerðinni
Valsat, Skanti VHF talstöð og GMDSS
handstöð. Brimrún hf. seldi Furuno
FR-7062 ratsjá, frá Radíómiðun kom
Maxsea Mac G3 plotter, frá Skiparadíó
kom Westmar astiktæki og farsími frá
Hátækni.
Margir komu
að verki við smíðina
Auk þeirra fyrirtækja sem að framan er
getið komu að smíði Svanborgar Tré-
smiðjan Brim í Hafnarfirði, sem sá um
innréttingasmíði, Rafboði í Garðabæ,
sem sá um allar raflagnir og VÁ þjón-
ustan í Grindavík sem hafði með
höndum alla málningarvinnu. Skipið
var málað með Hempels málingu frá
Slippfélaginu málningarverksmiðju. Þá
kom brunaviðvörunarkerfi frá Rafiðn,
lensidælur frá Vélasölunni, gluggar frá
Vélorku og björgunarbúnaður frá Iced-
an.
Síðast en ekki síst ber að geta hönn-
uða skipsins sem er Skipa- og véla-
tækni í Keflavík. Það fyrirtæki hefur
hannað alla raðsmíðabátana sem Ósey
er nú að framleiða. Svanborgin er
Sœbjöm Ásgeirsson, útgerðarmaður og
eigandi Svanborgar með bátinn í baksýn.
Svanborgin mun, ásamt öðrum sams
konar báti, koma í stað 70 tonna báts sem
Sœbjöm hefur gert út í samstarfi við
tengdafóður sinn.
númer tvö í þeirri röð en fjórir bátar
eru nú í smíðum í stöðinni.
Tveir bátar í stað eins áður
Eins og áður segir er Sæbjörn Ásgeirs-
son útgerðarmaður Svanborgar SH.
Skipið mun hafa um 220 tonna
þorskígildiskvóta en Sæbjörn var áður í
útgerð með tengdaföður sínum, Erlingi
Helgasyni og gerðu þeir út 70 tonna
bát, Friðrik Bergmann SH. í stað endur-
nýjunar á honum keyptu þeir feðgar
hvorn sinn bátinn frá Ósey og skipta
kvótanum á milli sín. Sæbjörn var fyrri
til að fá sinn bát en Erlingur fær sinn
bát með haustinu.
Skipstjóri á Svanborgu SH verður
Sæbjörn Ásgeirsson, eigandi, en auk
hans verða í áhöfninni Kristján
Ríharðsson, vélstjóri, Vigfús Elvan
Friðriksson, stýrimaður og Kristinn
Kristgeirsson, kokkur.
REVTINGUR
Verð hvalafurða
í Noregi ákveðið
Lágmarksverð á hvalkjöti í
Noregi hefur verið ákveðið um 190
íslenskar krónur á kfló, sem er um
14 króna lækkun frá fyrra ári.
Samkomulag varð um lækkunina
vegna þess að enn eru til talsverðar
birgðir. Verð á spiki er um 30
íslenskrar krónur á kílóið að því
tilskildu að samkomulag náist um
frystingu.
(Fiskaren)
Greenpeace samtökin
kreíjast aðgerða
Greenpeace samtökin krefjast
aðgerða gegn „sjóræningjaveiðum"
og of mikilli afkastagetu fiskveiði-
flota þjóða heims. Samtökin vilja að
úthafsveiðiflotinn minnki um meira
en 50%, en til hans teljast um
35.000 skip.
Greenpeace telur að „sjóræn-
ingjaveiðar" á úthöfunum stundi
um 1.200 skip undir hentifánum því
ríki sem leyfi slík afnot af fánum
sínum spyrji ekki til hvers eigi að
nota þá og það komi sér vel fyrir
„sjóræningjana", sem séu að stela
fiski frá vanþróuðum löndum og
selji hann síðan f Japan, Evrópu og
Bandaríkjunum.
(Fiskaren)
Mm 47