Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1999, Blaðsíða 20

Ægir - 01.06.1999, Blaðsíða 20
Reykjavík! Vöruflutningahöfn Samskipa við Holtagarða: Um 140 þúsund tonn af fiskafurðum fara um höfnina árlega „Við rekum hér miðstöð fyrir útflutning á fiskafurðum og söfnun hingað í frystivörumiðstöö okkar afurðum af öllu landinu, auk þess sem frystitogar- ar landa afuröum sinum hér við hafn- argarðinn," segir Ásbjörn Gislason, deildarstjóri útflutnings Samskipa hf. Á Vogabakka í Reykjavik hafa Samskip byggt upp viðamikla þjónustu við þau fyrirtœki sem framleiða frystar fiskaf- urðir og stœrsta skrefið í þá átt stigu | Samskip fyrir um ári þegar tekin var i notkun frystivörumiðstöðin ísheimar við Vogabakka þar sem hœgt er a.ð koma fyrir um 3500 vörupöllum af fiski. Aðal ástæð- una fyrir byggingu ís- heima segir Ábjörn þá að sífellt meiri kröfur séu gerðar til flutnings á frystum mat- vælum sem íslendingar flytji út, eink- um sjávaraf- urða, enda er slíkt í takt við breytt við- horf neytenda í seinni tíð. Algengt sé að fyrirtæki um allt land framleiði fjölda mismunandi sjávarafurða sem oft á tíðum eru fullunnar en kaupend- ur séu dreifðir um allan heim og vilji gjarnan kaupa lítið í einu af hverri af- urð. „Þetta kallar á tíðari flutninga og umskipun í erlendum höfnum, sívax- andi þörf á geymslum nálægt mikil- vægustu mörkuðum og vörudreifingu í smærri einingum en áður. í þessu ferli gegnir frystivörumiðstöðin mikil- vægu hlutverki," segir Ásbjörn. Afgreiðslugetan í ísheimum er um 600 pallar á dag. Kalt 700 fermetra af- greiðslurými er fyrir framan frostklef- ann. Þar er hægt að afgreiða 8 gáma eða flutningsbíla samtímis. Öll vara er strikamerkt og móttaka og afhending skráð rafrænt um leið og varan fer á færiböndum inn og út úr geymslunni. Þjónusturými er á tveimur hæðum, þar eru m.a. tvær fullkomnar skoðun- arstofur og skrifstofuaðstaða fyrir við- skiptavini. Frystivörumiðstöðin er í suðaust- urjaðri lóðar félagsins á Vogabakka, sem Ásbjörn segir gert til að tryggja Frystivörumiðstöðin ísheimar er mikið hús og hannað með nútímatœkni í huga. Um 3500 vörupallar komast í húsið og hefur húsið verið fullnýtt frá því það var tekið í notkun í fyrra. Séð yfir aðstoðu Samskipa við Holtabakka. Til hœgri má sjá frystivörugeymsluna ísheima. sem best tengsl við gámavöll, umferð flutningabíla inn og út af svæðinu og þjónustu við frystitogara sem leggjast þar að. „Þjónustuna byggjum við þannig upp að safna hingað í miðstöðina af- urðum utan af landi með strandferða- skipi okkar eða með frystibílum. Flutningurinn á landi hefur farið vax- andi hjá okkur enda vilja útflutnings- fyrirtækin stytta eins og hægt er þann tíma sem líður frá framleiðslu afurð- anna og þangað til þær komast í hendur kaupendanna erlendis," segir Ásbjörn. Frystivörumiðstöðin ísheimar gegnir mikilsverðu hlutverki fyrir framleið- endur frystra sjávarafurða sem nýta sér útflutning með Samskipum. Ásbjörn segir að frá fiskvinnslufyrirtækjunum út um landið komi framleiðslan í stór- um sendingum sem innihaldi mis- munandi afurðir sem fara eigi á ólíka 20 ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.