Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1999, Blaðsíða 37

Ægir - 01.06.1999, Blaðsíða 37
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur: Lítill ávinningur af einu landsfélagi Skipulagsmál samtaka sjómanna hafa undanfarið veríð töluvert til umrceðu ogvoru m.a. eitt afaðal- málum síðasta þings Sjómannasam- bandsins. Mjög skiptar skoðanir eru meðal aðildarfélaga Sjómannasam- bands íslands um hvort stefna eigi að eitiu landsfélagi sjómanna eða hvort hafa eigi fyrirkomulagið óbreytt, það er staðbundin stéttarfé- lög með aðild að Sjómannasambandi íslands. Þœr raddir heyrast einnig að sameina eigi öll samtök sjómanna í eiti heildarsamtök. Þá vekur athygii grein setn gjaldkerí Sjómatmafélags Reykjavíkur skrífar í Sœfara, blað Sjóitiantiasambands íslands sem kom út nú í byrjun júní. Þar segist hann vera efitis utn hvort Sjómanna- félag Reykjavíkur hafi eitthvað að gera innan Sjómannasambands Is- latids. Ekki fylgja ttteð vangaveltum gjaldkerans skoðanir hans á framtíð- aruppbyggingu samtaka sjómanna. Hvert ferðinni er heitið! Fyrir nokkru fengu aðildarfélög Sjó- mannasambandsins send til sín drög að upplýsingum sem fara áttu út með könnun, sem til stendur að gera meðal sjómanna um afstöðu þeirra til stofn- unar landsfélags sjómanna eða óbreytts fyrirkomulags. Verkalýðsfélag Húsavíkur gerði alvarlegar athuga- semdir við drögin og krafðist þess að þeim yrði breytt þannig að könnunin yrði hlutlæg og óháð skoðunum ein- stakra aðila. Félagið taldi fyrirhugaða könnun annars verða leiðandi, eins og verið væri að panta fyrirfram þóknan- lega niðurstöðu fyrir aðila í forystu- sveit sjómanna, sem vilja stefna að einu landsfélagi þeirra. Stjórn Vlf. Húsavíkur samþykkti að taka ekki þátt í könnuninni nema henni yrði breytt í samræmi við óskir félagsins. Tryggja þarf sjómönnum sem besta þjónustu Á síðasta aðalfundi sjómannadeildar Vlf. Húsavíkur var tekin skýr afstaða til skipulagsmála sjómanna með álykt- un sem deildin sendi frá sér til Sjó- mannasambandsins. { henni fagna húsvískir sjómenn þeirri umræðu sem átt hefur sér stað um skipulagsmál sjó- manna innan Sjómannasambandsins sem hnígur í þá átt að efla samtök sjó- manna. Þeir telja að taka þurfi á skipu- lagsmálum sjómanna þannig að sem flestir sjómenn hafi sem bestan að- gang að þjónustu aðildarfélaga sam- bandsins. Þeir telja jafnframt lausnina á skipulagsmálum ekki fólgna í stofn- un eins landsfélags heldur telja hag sínum best borgið í staðbundnu félagi eins og Vlf. Húsavíkur. Þau félög inn- an Sjómannasambandsins sem ekki geti veitt sjálfsagða þjónustu við sjó- menn vegna fámennis eigi þegar í stað að taka upp viðræður við önnur félög um sameiningu eða aukið samstarf. Staðbundið félag geti betur sinnt svæðisbundnum málum er varða sjó- menn en landsfélag kæmi til með að gera. í því sambandi benda þeir á að sjómenn á Húsavík hafi beitt sér fyrir mörgum velferðarmálum sem snerta þá og fjölskyldur þeirra. Þeir hafi barist fyrir úrbótum i hafnarmálum á Húsavík og lagt fram fjármagn til kaupa á björgunarbátum og björgun- artækjum sem aukið hafi öryggi þeirra sjófarenda sem fara um Húsavíkur- höfn. Ákvörðunarvald sjómanna í þeim málum sem varða hagsmunamál þeirra eigi að vera áfram heima í hér- aði. Nærtækast að styrkja Sjómannasambandið Undirritaður tekur heilshugar undir skoðanir sjómanna í Vlf. Húsavíkur og hafnar algjörlega hugmyndum um stofnun eins landsfélags sjómanna. Aðal rökin fyrir stofnun eins landsfé- lags virðast ganga út á að styrkja sjó- menn gagnvart kjarasamningum. Nær ----------------ÆGM 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.