Ægir - 01.06.1999, Side 10
Ástæðan fyrir því að verkefnið fór
af stað í ársbyrjun 1997 var einmitt sú
að Marel hf. þótti sem þau kvoðu-
hreinsiefni sem notuð eru í fisk-
vinnslu hefðu óeðlilega mikil áhrif á
slit á vélbúnaði í fiskvinnslu og leitaði
fyrirtækið því til Friggjar um samstarf í
þróun á nýju efni sem færi betur með
vélarnar.
Indriði Björnsson, efnafræðingur og
þróunar- og gæðastjóri Friggjar, segir
það hafa verið þekkt vandamál að
færibandareimar hafi viljað styttast
með tímanum og slitna hratt. Ástæða
þess sé kvoðuhreinsiefni sem hafi
áhrif á reimarnar. Með nýja efninu
hafi verið haft að leiðarljósi að þróa
efni með lágmarks áhrifum á eðlis- og
efnafræðilega uppbyggingu færi-
bandareima en jafnframt að uppfylla
kröfur markaðarins um hreinsihæfni.
„Niðurstaðan af verkefninu var
Indriöi Bjömsson, þróunar- og gceðastjóri Friggjar hf. með nýja kvoðuhreinsiefnið sem er
afurð rannsóknarverkefhis sem fyrirtœkið vann að, ásamt Marel hf.
10 AGIR
fái meðmæli frá Marel til notenda á
Marel-tækjabúnaði.
„Þeir hjá Marel mælast til þess við
sína viðskiptavini að nota efnið vegna
þess einfaldlega að tækin slitna minna
en annars væri ef notuð eru önnur
kvoðuhreinsiefni. Kostnaðurinn við
viðhald verður einfaldlega minni og
tækin endast lengur," segir Indriði.
Hann segir að efnið verði reynt í
kjötiðnaði hér á landi og aðspurður
um erlenda markaði segir Indriði að á
sjávarútvegssýningunni í Brussel í apr-
íl síðastliðnum var efnið kynnt fyrir
erlendum umboðsmönnum Marels,
auk almennrar kynningar.
„Markaðsstarfið mun engu að síður
taka nokkurn tíma og jafnvel þó nið-
urstöður af rannsóknum sýni ótvíræða
kosti efnisins þá tekur langan tíma að
vinna því fótfestu á markaðnum. En
ein besta viðurkenning sem við getum
fengið á efnið er að Marel mælir með
því við sína viðskiptamenn og það
hjálpar okkur í markaðsvinnunni,"
segir Indriði Björnsson.
Sápugerðin Frigg hf.:
Umhverfisvænt
kvoðuhreinsiefni þróað
í samstarfi við Marel
TJRIMA fipó er nýtt og umltverfis-
JT vænt kvoðuhreinsiefni sem Frigg
hf. í Garðabœ hefur sett á markað
hér innanlands og er afrakstur rann-
sóktiarverkefnis Friggjar og Marels hf.
sem stutt var af Rannsóknarráði ís-
lands. Efnið er œtlað til þvotta á vél-
búnaði í fisk- og kjötiðnaði og hefur
þann eiginleika hafa minni áhrifá
þann vélbúnað sem notaður er í
vinnslunum en standast um leið all-
ar kröfur sem gerðar eru um hrein-
lœti í iðnaðinum. Rannsóknarverk-
efnið skiptist niður í fjóra hluta og
voru þrír þeirra unnir á rannsóknar-
stofu Friggjar en eitin hjá Iðntœkni-
stofnun.
markverð og út úr því kom nýtt efni
með góða þrifaeiginleika og sem
greinilega hefur mun minni áhrif á
færibandareimarnar en önnur hreinsi-
efni. Síðan í október síðastliðnum hafa
svo staðið yfir framhaldsrannsóknir í
Granda og þar hafa verið gerðar ítar-
legar úttektir á þrifaeiginleikum með
stöðugum örverumælingum. Þær út-
tektir sýna að efnið hreinsar mjög vel
fitu, prótein og önnur óhreinindi,
jafnframt því sem tæringaráhrifin á yf-
irborðsfleti, s.s. stál, ál og ljósaplast
eru hverfandi lítil," segir Indriði.
Indriði segir að nýja FRIMA-efnið