Ægir - 01.06.1999, Qupperneq 23
flestar tegundir en alltaf hægt að prófa
nýjar aðferðir. Við eigum t.d. eftir að
þróa nýjar vörur í snakki og skyndibit-
um og nú þegar er ýmislegt að gerast í
þeim efnum. Nú er fyrirtæki komið af
stað hér á landi með þá nýjung að búa
til kraft úr rækjuskel og humri, það er
farið að vinna ensím úr roði og ég hef
verið að vinna snakk úr saltfiskroði
sem við höfum verið að kynna úti í
heimi," segir Úlfar.
Gellurnar
bregðast aldrei
Úlfar segist ekki eiga sér einn uppá-
haldsrétt á matseðlinum frekar en ann-
an en segir gellurnar alltaf jafn góðar,
hvernig sem þær séu eldaðar. Hann
segir athyglisvert að margur íslending-
urinn komi á veitingastaðinn til að fá
hefðbundna íslenska rétti, svo sem
saltfisk og siginn fisk.
„Ástæðan fyrir þessu er sú að margir
vilja ekki elda þessa rétti heima hjá sér
og fara þá á veitingahús til að fá þá. En
mesta breytingin frá fyrri árum finnst
mér vera sú að fólk biður óhikað um
að fá þann rétt af matseðlinum sem er
nýjastur, alveg burt séð frá því hvaða
furðunafni viðkomandi fiskur heitir.
Það sýnir að fólk er óhræddara gagn-
vart nýjungum úr okkar ágæta hrá-
efni," segir Úlfar Eysteinsson, mat-
reiðslumaður.
Grandi stærst
sj ávarútvegsfyrirtækj a
í borginni
Vafalítið er Grandi hf. stærsta
sjávarútvegsfyrirtækið í Reykjavík.
Fyrirtækið velti á síðasta ári um 3,5
milljörðum króna og veitti um 250
manns vinnu. Grandi hf. gerir út
þrjá frystitogara, tvo ísfisktogara og
starfrækir fiskvinnslu í
Norðurgarði. Þá á félagið einnig
nótaskip og starfrækir fullkomna
fiskimjölsverksmiðju í Örfirisey.
OskuM ÚTqERÖ t
MEÓ Nýj
q ÁhöÍN tíL hAMÍNqju
a skipið ÖRN KE 14
MarAfí er uiviboðsAðiLi
FyRÍR eFtírFarancIí bÚNAð
SKIPSTJÓRASTÓLL
Tvær qERÓÍR:
• NOR-SAP 1 500 fyRÍR stærrí skip
• NOR-SAP 1000 FyRÍR bÁTA
• NOR-SAP qólíbRAUTÍR
F.C. WILSON ENC. hjÁlpARvélAR
NOR-PRO skipshuRÓÍR
NYBORC LofrbLÁsARAR
NEWACE STAMFORD raFaLar
MARINE ALUMINIUM bRÚARqLuqqAR
MarAfl ehf. MARINE ALUMINIUM 1
______SKLPA OG VÉLAHLUTIR HEPWORTH MARINE
Dalshraun 13• 220 Hafnarfjörður• Sími 565 8584 • Fax 565 8542 skípSRÚðuþuRRkUR
ÆGIR 23