Ægir - 01.06.1999, Síða 29
Bók verður til
Utgáfa bókar á
borð við Sjó-
mannaalman-
akið er ekkert
áhlaapaverk og
koma fjölmarg-
ir að vinnslu
þess á hverju
ári. Má raunar
segja að á bak
við Sjómannaalmanak Fiskifélagsins, sem nú kemur út í
75. sinn, liggi vinna kynslóðanna og því langsótt að draga
þar fram einstök nöfn. Hin síðari árin hefur bókinni verið
ritstýrt af Athygli ehf. í Reykjavík og aðilar þaðan notið
aðstoðar starfsmanna Fiskifélags Islands við það verk.
Fleiri koma þó að vinnslu Sjómannaalmanaksins, m.a.
starfsfólk Markfells ehf., sem annast sölu auglýsinga,
starfsmenn Ritu ehf., sem hanna bókina og brjóta hana
um, og síðast en ekki síst prentarar í Odda en þar hefur
prentvinnslan verið undanfarin ár. Þá eru ótaldir ýmsir
höfundar að einstökum köflum og tugir Ijósmyndara sem
hafa lagt til myndir í þetta veglega rit.
ANDSSAMBAND
SLfNSKRA
SMABÁTAEIGENDA
FFSI
SJÓMANNASAMBAND (SLANDS
Vélstjórafélag íslands
LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA
Samtök
Fiskvinnslustöðva
Aðgengilegra
almanak
I Sjómannaalmanakinu 2000 er köflum
fjölgað og allar skýringamyndir og teikn-
ingar endurgerðar út frá nýjustu tækni.
Meðal annars verður í bókinni að finna nýjan
kafla um Fiskifélag Islands og bakhjarla þess
og nýja kafla um siglingar, veðurfar, fjarskipti
og veiðar við Island. Auk þess verður bryddað
upp á ýmsum nýjungum í efni sem eiga eftir að
koma skemmtilega á óvart.
I íslenskri skipa- og hafnaskrá, sem fylgir
með Sjómannaalmanakinu, eru gerðarýmsar
endurbætur. Birtar eru grunnupplýsingar um allar
hafnir á landinu, götukort og Ijósmyndir af við-
komandi sveitarfélagi fylgja með, auk ýmis konar
fróðleiks um téða staði.
Skipa- og hafnaskráin:
Kvótinn fylgir með
Fyrir þá sem hafa áhuga á að vita sitthvað um
íslenska fiskveiðiflotann hefur Skipa- og hafna-
skrá Sjómannaalmanaksins algera sérstöðu. Auk
grunnupplýsinga um öll íslensk þilfarsskip er þar
að finna nákvæmt yfirlit yfir úthlutaðan
kvóta þeirra næsta fiskveiðiár. £r kvótanum
skipt í 12 flokka: þorskur, ýsa, ufsi, karfi,
steinbítur, grálúða, síld, loðna, rækja,
humar og skel, annað (aðrar tegundir) og
loks þorskígildi með jöfnunarúthlutun.
Þá má og finna í Sjómannaalmanakinu skrá
yfir sérleyfi á skipsnöfnum en í henni er hægt
að fletta og ganga úr skugga um að
fyrirhugað nafn sé „laust" ef nefna á nýtt
skip.
VERKAMANNASAMBAND ÍSLANDS
Sjómannaalmanak sjávarutvegsins!
Eitt aðalmarkmið Fiskifélags Islands hefur frá upphafi verið að efla hag greinarinnar og stuðla að framförum í
íslenskum sjávarútvegi. Félagið hefur leitast við að aðlaga skipulag sitt að aðstæðum á hverjum tíma. A síðastliðnu
ári var skipulagi félagsins breytt verulega og er félagið nú í raun regnhlífasamtök og samstarfsvettvangur hags-
munasamtaka innan íslensks sjávarútvegs.
Útgáfa Sjómannaalmanaksins er mikilvæg fyrir starfsemi Fiskifélags Islands og einn af þeim þáttum sem gera
félaginu kleift að sinna sínu hlutverki. Með því að kaupa Sjómannaalmanak Fiskifélags Islands eru því félagsmenn
Farmanna- og fiskimannasambands Islands, Landssambands íslenskra útvegsmanna, Landssambands smábáta-
eigenda, Samtaka fiskvinnslustöðva, Sjómannasambands Islands, Verkamannasambands Islands og Vélstjórafél-
ags íslands að stuðla að sínum eigin hagsmunum.