Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.06.1999, Qupperneq 38

Ægir - 01.06.1999, Qupperneq 38
væri að vinna að því að styrkja Sjó- mannasambandið og félög þess inn- byrðis til að þau geti betur sinnt því hlutverki sem þeim er ætlað að sinna daglega, það er almennri þjónustu við sjómenn, sem sífellt er að aukast. Þrátt fyrir að undirbúningur kjarasamninga og kjarasamningsgerð sé mikilvægur hlekkur í starfi aðildarfélaga Sjó- mannasambandsins má ekki gleyma þeim mikilvæga þætti sem felst í dag- legri þjónustu stéttarfélaganna við sjó- menn. Það er ekki svo að skipulagið eins og það er í dag sé til fyrirmyndar. Því miður er alltof mikið um að félög inn- an Sjómannasambandsins hafi ekki bolmagn til að sinna eðlilegri þjón- ustu við sjómenn vegna fámennis fé- laganna og er það áhyggjuefni hve sum félög eru sinnulaus í því að taka á málinu með sameiningu við önnur fé- lög í huga eða með því að taka upp nánara samstarf við önnur stéttarfé- lög. Á þessum þáttum þarf að taka og hefði Sjómannasambandið fyrir löngu átt að vera búið að taka þessi mál til skoðunar með það í huga að veita að- ildarfélögum sambandsins mun meira aðhald en verið hefur. Þó þykist ég vita að Sjómannasambandið hafi til þess takmarkað vald. Lærum af reynslunni Með stofnun landsfélags eru líkur á að sjómenn stæðu að mörgu leyti mun verr félagslega en þeir gera í dag. í því sambandi bendi ég á að nokkur félög innan sambandsins standa mjög vel fjárhagslega og hafa því getað staðið vel við bakið á félagsmönnum. Með því t.d. að styðja þá félagsmenn sem átt hafa í veikindum og þurft hafa að leita lækninga um langan veg, t.d. til Reykjavíkur, tekið þátt í námskeiðs- kostnaði, veitt fjárhagsaðstoð í verk- föllum sjómanna og veikindum, stað- ið fyrir heilsurækt og námskeiðahaldi á viðkomandi stöðum auk þess að SKUTULL IS 180 Óskum útgerc) og áhöfn til hcxmingju með breptingarnar 38 MGÍU

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.