Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1999, Page 41

Ægir - 01.06.1999, Page 41
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI á björgunarbúnaðinn. Stefnan var svo tekin inn fyrir eyjar þar sem vitjað var um krabbagildru. Heldur var nú aflinn rýr, aðeins einn krabbi hafði villst af leið og í gildruna en krakkarnir voru samt áhugasöm og skoðuðu veiðina í bak og fyrir og veiðarfærið líka. Nú var siglt aðeins lengra og nem- endurnir skoðuðu sig um í skipinu. Að því búnu fóru allir upp á dekk því nú var komið að því að setja út trollið. Þeirri athöfn fylgir mikill hávaði þegar keðjur og kúlur úr járni skrölta útbyrð- is. Þetta umstang vakti óskipta athygli og nú vitum við landkrabbarnir af hverju heyrnarhlífar eru notaðar til sjós. Á meðan togað var fóru allir niður í sal að skoða myndband um togveiðar og hafrannsóknir, afar fróðlegan og vel gerðan þátt. Fiski- fræðingurinn, sem er verkefnisstjóri um borð og heitir Þór Ásgeirsson, fræddi nemendur um það sem fyrir augu bar og þau spurðu ýmissa spurninga og fengu greið svör og ræddu um þetta fram og aftur. Aftur drifu sig all- ir upp á dekk því nú var komið að því sem er mest spenn- andi, að hífa inn trollið og nú var spennandi að sjá hvort eitthvað hafi fengist. Eftirvænt- ing barnanna lá í loftinu, það var góður slatti í pokan- um. Innihaldinu var sturtað úr pokan- um og niður í fiskimóttöku á neðra þil- fari þar sem gert var að aflanum á landstíminu. Næst var tekið til við handfærarúll- urnar og krakkarnir röðuðu sér á þær tvö og tvö á hverja rúllu og voru fljót að læra réttu handtökin. Einn strákur var svo forsjáll að taka með sér veiði- stöng. Múkkinn raðaði sér í hálfhring skammt undan og vonaðist greinilega eftir bita, því miður, sá guli gaf sig ekki þrátt fyrir mikið puð og væntingar en reynt var góða stund. Nú var haldið niður og í aðgerð. Unglingarnir sem voru afar líflegir og áhugasamir settu á sig svuntur og fengu gúmmíhanska og svo hófst fræðslan. Fiskifræðingurinn frá Hafró tók heljarstóran steinbít og kynnti hann fyrir áhorfendum og ákveðið var að kryfja fiskinn. Þar kom ýmislegt fróðlegt i ljós, t.d. kvarnir og heili, að vísu ekki stór, og svo var innihald magans skoðað og í ljós kom allmikið af skeljum í honum. Tennurnar eru allsvakalegar og reyndar kjafturinn all- ur. Eins gott er að vara sig svo hann nái ekki að bíta því þá getur farið í verra! Allmargar tegundir voru í aflanum, t.d. tindabykkja, skata með pétursskip, sólkoli, rauðsprettur, grásleppur, ýsur, lýsa, þorskar, sæbjúgu og nokkrir kross- fiskar ásamt nokkrum fleiri steinbítum. Og nú hófust allir handa við aðgerð- ina, mikið fjör og mikið gaman. Það verður að segjast að nemendur þessir voru allir sem einn til mikillar fyrirmyndar og höfðu mikinn áhuga á því sem fyrir augu og eyru bar og tóku virkan þátt í því sem fram fór. Ég efast ekki um að þau eru margs fróðari um það á hverju við lifum og að þessi dag- ur verður þeim alltaf minnisstæður. Ég mæli með því að áframhald verði á þessari fræðslu og að það verði fastur liður framvegis að fara svona ferðir með efstu bekki grunnskólanna og tengja þetta líffræði og starfsfræðslu. Við lifum nefnilega ekki bara á því að klippa hvert annað! Að ferðalokum fengu nemendurnir að gjöf Sjómannaalmanak Fiskifélags íslands því eins og allir vita er það fullt af fróðleik og nýtist skólan- um við kennslu, nú og í framtíð- inni fyrir verð- andi sjómenn og aðra. Að síðustu langar mig til að þakka skip- stjóra og áhöfn fyrir ánægjulega ferð og einnig öllum nem- endunum og kennara þeirra fyrir sam- fylgdina. Það er ekki hægt annað en að hafa trú á unga fólkinu eftir jafn ljúfa viðkynn- ingu. Hildur Guðbrandsdóttir. Höfundur er starfsmaður Fiskifélags íslands. Það vakti mikla athygli þegar trollið var látið fara. Skrölt og hávaði þegar bobbingamir ninnu aftnr úr skutrennunni. AGIR 41

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.