Ægir - 01.06.1999, Síða 52
1004/P70X, 60 kW með 75 kW rafal.
Utanborðskælir er af gerðinni R.W.
Fernstrum fyrir kælikerfi aðalvélar,
hjálparvéla og gírs.
Rafkerfi skipsins er 3 x 380/220 V,
50 Hz og 63 A einangrunarspennir fyr-
ir landtengingu. Hægt er að keyra
ljósavélar saman með samfösun.
Stýrisblaðið er flapsastýri frá Barke-
meyer af gerðinni Barke BRB 12-21-11.
Flapsastýrið tengist Ulstein Tenfjörd
stýrisvél af gerð SR562L.
Gangsetning dieselvéla fer fram
með rafræsi sem knúin er af 24 V DC
rafgeymakerfi. Hægt er að ræsa aðalvéi
úr brú.
Kælikerfi fyrir lest er frá Kælingu.
Kerfið samanstendur af Blitzen þjöppu
og tveimur Kiiba blásurum. Klukku-
stýrð rafmagns afhríming er á kæli-
blásurum. Kæliafköst lestarkælingar
eru um 15 kW og kælimiðillinn er 15
kg af R404A umhverfisvænum kælim-
iðli sem kemur í stað R 22.
Fyrir ferskvatnskerfi er þrýstidæla
frá Speck með 125 1 kút. Afköst dæl-
unnar er 1 m3/ klst. Heitt vatn er hitað
með rafmagni í 150 1 kút frá Nibe.
Frá K&R eru tvær 5,5 kW brunadæl-
ur af gerðinni SAEN 2109/200/185 og
tvær 4 kW austursdælur af gerðinni
SAEN 2109/200/165.
í vélarúmi er C02 slökkvikerfi. C02
flöskunum er komið fyrir í sérstöku
húsi út í bakborðssíðu milli stigahúss
vélarúms og stakkageymslu. Neyðar-
uppgangur úr vélarúmi er við lestarþil
stjórnborðsmegin.
Vökva- og spilkerfi
Vökvakerfi og spil eru frá Ósey. Vökva-
kerfið er háþrýst og vinnur á 210 bara
þrýsting. Tvær Denison spildælur eru
á gír aðalvélar, hvor 200 1/mín. Ein
rafknúin 30 kW dæla er fyrir losunar-
krana og akkerisspil.
Togspilin sem eru tvö eru frá Ósey
af gerðinni MS 50. Togkraftur hvors
ORN KE14
1
H -
w,.
_ ■ — ,
- - rs
i
ÓSKUM ÚTGERÐ OG ÁHÖFNTIL HAMINGJU
MEÐ NÝJA SKIPIÐ SEM HANNAÐVAR AF
SKIPATÆKNI
Aðili að Vik S Sandvik samsteypunni
Borgartúni 30
105 Reykjavík
Simi: 5 400 500
Fax: 5 400 501
e-mail:
skipataekni@skipataekni.is
52 ÆGiIR