Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Side 5
sem lög og bæði staðfest af konnngi 30. júlí 1909 (fvlgiskjal
I og II). Þó gátu lög þessi ekki komið til framkvæmda fyrst
um sinn, því að það ákvæði var sett inn í lögin um stofn-
un háskóla, að háskólinn skyldi ekki taka til starfa, fyr enn
fje væri veitt til hans í fjárlögum. Alþingi 1911 rak smiðs-
höggið á, þar sem það veitti fje til háskólans í fjárlögum
fyrir árin 1912 og 1913 (fylgiskjal III) og skaut inn í 5. grein
fjáraukalaga fyrir 1910—1911 lið þess efnis, að Háskóli ís-
lands skyldi settur 17. júní 1911 (á aldarafmæli Jóns Sigurðs-
sonar), enn háskólakennarar þó ekki taka laun fyr enn frá
1. okt. s. á.
Til þess að fullnægja fyrirmælum fjáraukalaganna, út-
vegaði þáverandi ráðherra, Kristján Jónsson, konungs stað-
festing á þeim 8. júni 1911, og setti síðan þá menn, sem nú
skal greina, til að gegna háskólakennaraembættum fyrst um
sinn til 30. september 1911. Prófessorar vóru settir: í guð-
fræðisdeild sjera Jón Helgason og sjera Haraldur Níelsson,
í lagadeild Lárus H. Bjarnason, Einar Arnórsson og Jón
Ivristjánsson, i læknadeild Guðnnindur Björnsson og Guð-
mundur Magnússon, i heimspekisdeild dr. Björn M. Ólsen
og Agúst Bjarnason. Dócentar vóru settir: í guðfræðisdeild
sjera Eiríkur Briem og i heimspekisdeild Hannes Þorsteins-
son. Aukakennarar í læknadeildinni vóru hinir sömu, sem
áður við læknaskólann.
Almennur kennarafundur liáskólans var haldinn 10. júní
1911, og var þar kosinn rektor háskólans prófessor dr. Björn
M. Ólsen. Sama dag vóru haldnir deildarfundir og þessir
kosnir deildarforsetar: i guðfræðisdeild prófessor Jón Helga-
son, í lagadeild prófessor Lárus H. Bjarnason, i læknadeild
prófessor Guðmundur Magnússon, í heimspekisdeild pró-
fessor Ágúst Bjarnason.