Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 8

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 8
4 einskonar »collegia funeraria.1 2) Efnahagurinn setti einnig skorður við því, að vinnulýðurinn gæti trygt framtið sina með tryggingarsamningum, liftryggingum eða öðrum slíkum framfærslusamningum, auk þess sem forsjálni einstakling- anna auðvitað reyndist misjöfn. Framlög hins opinbera, vel- gerðastofnana og einstaklinga reyndust einnig ónóg og þegar af þeirri ástæðu varð skipulagið ófullkomið. Sjerstaklega var ekki hægt að heimila einstaklingunum rjett til styrktar, þeir áttu undir högg að sækja um hjálpina og einatt varð starf- semin keimlík fátækraframfærslu. Atvinnurekendur, er sáu hve bágborið og ófullnægjandi þetta ástand var, áttu ekki ósjaldan þátt i þvi, eða frum- kvæði að því, að gera ráðstafanir til þess, að vernda starfs- menn sína gegn efnalegri eyðileggingu at völdum slysfara eða sjúkdóma og hrumleika, með því að stofnselja sjúkra- og ellihæli eða gangast fyrir og styrkja líknarstarfsemi í þessa ált. En auðvitað reyndist frjálst framtak einstaklinga, einnig af þessari hálfu, algerlega ófullnægjandi. Það var að eins litill hluti atvinnurekenda, sem lagði nokkuð verulegt fram í þessu skyni og þeir hinir sömu stóðu yfirleitt ver að vígi í samkeppninni við þá keppinauta, er veltu allri byrðinni af sjer yflr á hið opinbera. Aðdragandi að tryggingarskipulagi. Um og eftir miðja 19. öldina fóru þær raddir að verða háværari, er bentu á að ástandið væri óhæft og yrði seint eða aldrei lagfært án gagngerari opinberrar íhlutunar. í Bandaríkjunum og á Englandi var efnahagur nokkurs hluta verkalýðsins bærilegur og frjálsum efnalegum samtökum þeirra lengra komið, svo það var eðlilegt að það var á meginlandi Európu og sjerstaklega á Þýzkalandi, þar sem iðnaðaröldin var að skella yfir, að menn ræddu af kappi möguleikana á þvi að koma gagngerara skipulagi á hag vinnu- lýðsins i þessu efni.s) Þegar einstaklings framtakið reyndist ófullnægjandi og stefndi í þá áttina, eins og i Bandarikjun- 1) Greftrunar- og útfararfjelög, er mjög tíðkuðust í Rómaveldi til forna. 2) Af þessum rithöfundum má sjerstaklega nefna þá Marlo (Winkel- blech), Scháffle og Brentano. y

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.