Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Side 15

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Side 15
11 hvern einstakling, er blált áfrani heimilaður rjettur lil slyrks, án þess að nokkurt sjerstakt framlag af hendi einstaklings- ins sje meðal skityrðanna fyrir því, að verða slyrksins að- njótandi, Lög um ellistyrk með þessu sniði voru sett í Dan- mörku 1891, síðan breytt og aukin 1908. Kostnaðurinn er lagður á sveitar- og rikissjóð aðjöfnuog slyrkhæð til handa hverjum einstakling, fer eftir mati innan vissra takmarka.* 1) Svipað skipulag um ellistyrk var lögleitt á Nýja Sjálandi 1898. í Ástraliu og Englandi 1908. Ivostnaðurinn greiðist þó eftir þessum lögum úr ríkissjóði og, að Ástraliu undanskil- inni, er styrkhæðin lögákveðin, án þess að mat komi til. Ellistyrkur var einnig í lögum á Frakklandi frá 1905 til árs- ins 1910, er ellitrygging var lögboðin þar. Að styrktarfyrirkomulaginu hefir það helst verið fundið, að með því væri dregið úr ábyrgðartilfinningu almennings, er ekki væri beinlínis krafist tryggingargjalds af hverjum einstökum manni fyrir sig. Reynslan i þeim löndum, sem notað hafa fyrirkomulagið um allmörg ár, bendir þó ekkert sjerstaklega i þá átt, enda er jafnan nóg af ákvæðum þessu við- vikjandi í sjálfum styrkskilyrðunum, svo sem að hlutaðeigandi liafi ekki þegið fátækrastyrk um ákveðið árabil o. þvíl. 1 sjálfu sjer er munurinn á styrktarfyrirkomulaginu og tryggingarskipu- laginu meiri á yfirborðinu en í reyndinni, og liggur nærri að líta á styrkfyrirkomulagið sem afbrigði frá tryggingunum, þar sem iðgjaldið blátt áfram er lagt á og innheimt eftir sömu reglum og skattar til hins opinbera, í stað þess að vera lagt á beinlínis og sjerstaklega. Tryggingarnar og fátækrabyrðin. Þar sem tryggingar ekki eru komnar á, eða að svo miklu leyti sem þær ekki ná til, lenda flestir af hinum sjúku, slösuðu og ellibiluðu á fátækraframfæri, svo framarlega sem þeir ekki hafa efni, einkatryggingu eða góðsemi ættingja eða vina upp á að hlaupa. Á árunum næstu áður en þ}rsku tryggingarnar komust á fót, á árunum um og eftir 1880, voru af öllum þeim, sem á fátækraframfæri voru þar i landi, 1) Nákvæma lýsingu á ellistyrksskipulaginu danska gefur H. Ander- sen: Alderdomsunderstöttelseslov i ritinu Danmarks Sociallovgivning 1. Bd. Iímh. 1918, bls. 81—186.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.