Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Side 20

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Side 20
16 borga sig«, eins og það hefir verið orðað. Þetta getur aftur stafað frá, ef til vill óviðráðanlegum, erlendum ráð- stöfunum, erlendur markaður lokast eða breytist fyrir inn- flutningsbann eða nýja tolla, innlendur markaður eyðilegst fyrir innflutning afgangsvöru (dumping) o. s. frv. eða þá að innlendum ráðstöfunum eða ráðstafanaleysi er um að kenna, þannig að ákveðnum atvinnurekstri sje íþyngt svo, að hann verði að hætta, eða þá að almenna ástandið sje þannig fyrir dýrtíð, óeðlilegan verðmælikvarða (skakt gengi), ofháa tolla, eða aðrar álögur, sem bytna á atvinnu án tillits til þess, hvort hún borgar sig, og fjölmargt fleira J) að þeir atvinnu- vegir, sem veikastir eru fyrir, eða helst verða fyrir barðinu á ástandinu, geti ekki staðist. Svo margar og ólíkar ástæður, sem að þessari tegund at- vinnulej^sis liggja, eiga þær þó sammerkt í því að vera nokkurn veginn ófyrirsjáanlegar, bæði fyrir atvinnurekendur og starfsmenn. Það verður því ekki með rjettu af þeim heimtað að þeir fulltryggi sig gagnvart öllu slíku atvinnu- leysi upp á eigin spítur, enda mundi atvinnurekstur, sem kostnaðinn ætti að bera, tæplega verða samkepnisfær. b. Ráðsiafanir gegn atvinnuleysi. Það sem fyrst blasir við, er ráða skal bót á atvinnuleysi af þessari tegund, er vitanlega ekki tryggingar- og styrktar- ráðstafanir, heldur hitt, að koma vinnu i gang, nýrri at- vinnu ef sú gamla er gereyðilögð, eða sömu atvinnunni aft- ur, ef tiltæklegt er að bæta úr skilyrðunum. Þó hjer sje um tvent ólíkt að ræða, verður þó hið sama upp á baugi að því er atvinnutryggingu snertir, sem sje, að hvorugar ráð- stafanirnar eru fljótgerðar, og næsta skrefið er því að tryggja tilveru atvinnulausra manna, meðan á þvi stendur að koma vinnu af stað. Alvinnutryggingar verða þannig i rauninni alt af aukaatriði, miðað við hitt, að ráða varanlega bót á ástand- inu. Aðalatriði af hendi hins opinbera gætu þær því að eins orðið, að ríkið á þessu sviði fylgdi grundvallarreglunni »lais- sez aller«, eða vildi láta ástandið batna af sjálfu sjer, en það Kumpmann kemst í framangreindri riigerö, bls. 795 pannig að orði: Bei der engen Zusammenhang von Politik und Wirtschaft wird fast jeder politischer Fehigriff in vermehrter Arbeitslosigkeit seinen Nie- derschlag finden.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.