Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Qupperneq 41
37
Akranesi og Sauðárkróki — til sveita eru engin.1) Yið þetla
bælist að það er eitt einasta fjelag, Sjúkrasamlag Reykjavik-
ur, sem leggur til langsamlega mestan hluta af framangreind-
um aðal-upphæðum.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur er stofnað 1909, áður en lögin
um sjúkrasamlög voru sett. 1 árslok 1925 var tala hluttækra
samlagsmanna 1802, hlutlausra 20. Iðgjöldin voru árið 1925 ca.
63000 kr., veikindakostnaður samtals 72000 kr., þar af 4782
kr. dagpeningar, 403 kr. til heimahjúkrunar og tæp 34000
kr. til lækna. Eignir sjóðsins voru rúm 64000 kr. í Reykjavik
starfar einnig elsta sjúkrasamlagið á landinu, Sjúkrasamlag
prentara, stofnað 1897. í árslok 1925 voru í þvi 72 hlullæk-
ir meðlimir, 2 hlutlausir. Iðgjöldin námu það ár tæpum
5600 kr., veikindakostnaður var alls 7300 kr., þar af 2300 kr.
dagpeningar og 2800 kr. til lækna. Sjóður í árslok 18500 kr.
Regar þessi 2 Reykjavíkur-samlög eru frátalin, verður það
augljóst, að samlögin utan Reykjavikur hafa svo að segja
enga þýðingu fyrir heildarástandið.
Það mun láta nærri að ca. 13% af Reykjavíkurbúum á
tryggingaraldri, yfir 15 ára, sjeu sjúkratrygðir, en tæp 2% af
öðrum landsmönnum.
Ríkissjóðsstyrkurinn lil sjúkrasamlaga nam samkvæmt
landsreikningunum
árið 1923: 6438 kr.
árið 1924: 5553 kr.
árið 1925: 7061 kr.
Af þessu yfirliti er það auðsjeð að sjúkralrvgging á þess-
um grundvelli, frjálsum fjelagsskap, er í allsendis óviðun-
andi ástandi hjer á landi. Utan kauptúna er engin sjúkra-
trygging og í kaupstöðum varla leljandi, nema í Reykjavik
einni, en jafnvel þar er þó þálttaka í trj'ggingu miklu minni
en viðunandi er talið erlendis, þar sem liku skipulagi er til
að dreifa.
I.ögin um sjúkrasamlög, frá 1911, eru sniðin eftir sjerstöku
fyrirkomulagi, scm miðar að því að styrkja sjálfsbjargarvið-
leitnina (System of subsidised freedom), fyrirkomulagi, sem
hygt hefir verið á í sænskum lögum um sjúkratryggingar,
1) Stöku samlag nær að visu eilthvað út fyrir kaupstaðinn eða
kauptúnið; hverju pað nemur er ekki hægt að sjá af skýrslunum til
stjórnarráðsins, en fyrir heildarmyndina hefir þetta áreiðanlega enga
þýðingu.