Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Qupperneq 42
38
frá 4. júli 1910, svissneskum lögum frá 13. júni 1911 og
dönskum lögum frá 10. maí 1915, en þau lög eru endur-
bætt útgáfa af eldri lögum dönskum frá 12. april 1892 um
viðurkenda sjúkrasjóði.
íslensku lögin frá 1911 eru mjög svipuð eldri sjúkratrygg-
ingarlögunum dönsku. En reynslan, útbreiðsla og nytsemi
sjúkrasamlaganna hefir orðið öll önnur i Danmörku heldur
en hjer á landi. Árið 1916, áður en nýju laganna frá 1915
fór að gæta, voru þar i landi 1549 sjúkrasamlög og tala hlut-
lækra fjelagsmanna var 910000 eða því nær helmingur (47,6n/o)
af öllum landslýð yfir 15 ára aldur. Arið 1923 var tala
sjúkrasamlaga alls 1644, þar af i sveitum 1440. Fjelagsmenn
voru samtals rúmlega 1350000, iðgjöld þeirra ca. 26 milj-
ónir kr., rikissjóðsstyrkurinn 121/* milj. kr. og sjóðseign tæp-
ar 30 milj. kr.1) — Jafnvel í Færeyjum voru 34 fjelög með
8210 hluttækum ijelagsmönnum.
Skipulag þetla hefir þannig reynst afhragðsvel i Danmörku,
en það er auðsjáanlega mjög bundið við stað- og þjóðháltu.
1 Svíþjóð hefir það reynst vel i syðstu landshlutunum, sem
svipar mjög til Danmerkur, miklu síður þegar norðar dreg-
ur. Bretar, sem áttu að búa við ekki ósvipað skipulag
(friendly societies) hurfu að löghoðnum sjúkratrvggingum
með lögum 16. des. 1911. Um reynsluna í Svisslandi er mjer
ókunnugt, en tæplega er hún allskostar góð, þvi ýms fylki
hafa horfið að lögboðnum tryggingum, Basel og St. Gallen
1914, Zug og Appenzell inner Bhoden 1916, Apenzell ausser
Rhoden 1920.
Skilyrðin fyrir þvi, að taka upp þelta skipulag, voru lika
yfirleitt öll önnur hjer á landi, en í Danmörku. Þar varöfi-
ug sjúkratryggingarstarfsemi fyrir, er lögin 1892 gengn í gildi,
trj'ggingar, sem átlu rót sina að rekja til skyldutrygginga í
iðnfjelagsskapnum gamla (Laug.). Hjer á landi var ekki ann-
ar grundvöllur en sjúkrasamlögin í Reykjavík, stofnuð 1897
og 1909.
Höfuðeinkenni skipulagsins er frjálsræðið, að það sje hverj-
um i sjálfsvald sett, hvort hann vill tryggja sig eða ekki, en
þetta er þó töluvert meira í orði en á horði. Sjúkrafjelags-
lögin dönsku láta þetta að vísu alveg frjálst, en ýms önnur
ákvæði um opinbera aðstoð (social Forsorg) hinda hlunn-
1) Statistisk Aarbog 1925, Tabel 119; De statsanerkendtc Sj’gekas-
sers Virksomhed.