Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 59

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 59
Að öðru leyti er rjett að taka það fram, að ellistyrkslögin innihalda ofurlitinn vísi að öryrkjastyrk, einnig án slysfara, þar sem 14. gr. þeirra heimilar að styrkja heilsubilaða fá- tæklinga, þó ekki sjeu þeir orðnir sextugir. Að öllu athuguðu fer því fjarri, að svo komnu, að al- menni ellistyrkurinn beri nafn með rentu. Hvað sem verða kann einhvern tíma í fjarlægri framtíð, þá er ekki leyst úr því, að því er nú lifandi menn snertir, hvernig sjá eigi fyrir þurfandi gamalmennum. B. Sjerstök ákvæði um Iífeyri o. þessk. Hjer skulu að eins nefnd aðal-atriðin úr skipulagi því, er nú gildir um lífeyri embællismanna o. fl. Eldra skipulagið um eftirlaun stóð fram til 1920, lög nr. 72 og nr. 73, 1919, og hefir því töluverða raunverulega þýðingu enn þá, en hún minkar vitanlega með ári hverju. Samkvæmt lögum nr. 51, 27. júní 1921 um lífeyrissjóð embættismanna og ekkna þeirra, skal hver embættismaður, er laun tekur eflir almennu launalögunum, verja 7% af launum sinum til þess að kaupa lifeyri í lífeyrissjóðnum, en til stofnfjár hans lagði rikissjóður 50.000 kr. eitt skifti fyrir öll, svo og ábyrgð á greiðslu lifeyris, 6. gr. Rjettur embættismannsins er hins vegar að fá lífeyri, sem nemur 27°/oo af launum þeim samanlögðum, sem hann hefir greitt iðgjöld af, ef svo fer, að hann fær lausn frá embætti sökum elli eða vanheilsu. Ekkja hans á sömuleiðis rjelt á lífeyri, er nemur 3/í af byrjunarlaunum í síðasta embætti mannsins, og jafnt hvort sem maðurinn enn var i embælti eða farinn að njóta lífeyris. Hvorttveggja, lífeyrir embættismanns og ekkju, er nokkrum nánari skilyrðum háð. Sje embælti lagt niður á embættismaðurinn rjelt á því, að fá iðgjöldin endur- greidd, eða halda lifeyrisrjettinum, 4. málsgr. 4. greinar, sbr. lög nr. 41, 27. júní 1925. Úr ríkissjóði nýtur ekkja enn fremur V10 af lágmarkslaun- um embætlis þess, er maður hennar hafði, þegar hann ljest og í viðbót má veita henni 50—100 kr. árlegan uppeldisstyrk handa hverju barni þeirra fram til 16 ára aldurs, ef þörf er fyrir hendi. Sömuleiðis getur konungur veitt munaðarlausum börnum embættismanns 100—200 kr. árlegan styrk, ef þau þurfa, alt fram að 16 ára aldri. í lögum nr. 33, 27. júní 1921, um lífeyrissjóð barnakennara

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.