Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 61
Almannatrygsing.
Ráðstafanir þær, sem gerðar hafa verið hjer á landi, til
þess, að einhverju lej’ti, að draga úr efnalegu tjóni, er hlýst
af veikindum, slysförum og ellibilun, eru, eins og yfirlitið
hjer að framan ber með sjer, allmjög í molum og harðla
sundurleitar. Er það að vonum, því hjer er um ráðstafanir
að ræða, sem gerðar hafa verið smámsaman, eftir því, sem
nauðsyn þeirra varð brýnni, eða augu manna opnuðustfyrir
henni, svo og eftir því, hvað fært þótti, kostnaðarins vegna,
eða með tilliti til þess, hverjar framkvæmdir hið opinbera sá
sjer fært að hafa með höndum á þessu sviði. Ýmsar af þess-
um ráðstöfunum verða að teljast í fullu lagi, það sem þær
ná, svo sem slysatryggingar og berklavarnir, aðrar hata ekki
komið að tilætluðum notum, svo sem sjúkrasamlögin, enn
aðrar liggur nær að skoða, sem undirbúning undir framtið-
arskipulag, frekar en sem núlíðarráðstafanir; svo er um al-
menna ellistyrkinn enn sem komið er.
t*að er ekki um neitt heildarskipulag að ræða, hvorki
beinlinis nje þannig, að ein ráðstöfunin taki við af annari.
Þvert á móti má skipulagið heita fult af glompum, þar sem
ekki er öðru til að dreifa, en fátækraframfæri.
Það kemur heldur ekki fram nein heildarskoðun i þessum
efnum. Sumpart er notað tryggingarskipulag — við slysa-
tryggingar — sumpart hreint styrktarfyrirkomulag — eftir
berklavarnarlögunum, með velhugsaðri kostnaðardreifingu o.
fl. — sumpart »danska« fyrirkomulagið, stuðningur til sam-
taka um tryggingu — sjúkrasamlögin — sumpart loks fyrir-
komulagið á almenna ellislyrknum, sem er sjerstaks eðlis.
Að svo hefir gengið með þessi málefni hjer á landi, er
ekkert einsdæmi. Svipað ástand hefir átt sjer slað um nokk-
urt skeið i ýmsum löndum, meðan verið var að ráða fram
úr fyrirkomulaginu. En hægt hefir þessum málum miðað
og því verður ekki neitað, að við erum í þessum efnum
yfirleitt langt á eftir tímanum og langt á eftir þjóðum, sem
um þjóðskipulag og menningu á öðrum sviðum, eru okkur
8