Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 66

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 66
62 Þar geta mats-atiiði komið til greina, fyrst og fremst um það, hvað almennings heill útheimli, en kringumstæður ein- staklingsins geta einnig komið til álita. En þessu mati er alt öðru vísi varið en mali á styrktar-verðleikum. Það sviftir einstaklinginn ekki örygginu, nær að eins til aukastyrktar, sem frá sjónarmiði hans er uppbót eða góðgjörð, enda ekki fyrst og fremst gerð hans vegna, heldur þáttur í almennri ráðstöfun tryggingarinnar. Það sem helst hefir verið fundið að tryggingarskipulaginu, þó fremur á byrjunarskeiði trjrgginganna en nú á dögum, er tryggingarskyldan, sem er óhjákvæmilegt grundvallaratriði i skipulaginu. Án skyldunnar var ekki með neinni vissu liægt að ná til þeirra, sem helst þurfa tryggingarinnar við, án skyldunnar verður allur grundvöllurinn óvissari, þ. e. trJrgS'n8*n verður d5rrari, og án skyldunnar þurfa tryggingar- sjóðirnir að vera miklu stærri, til skaðræðis fyrir atvinnulif landsins, þvi meira, því stærri sem þeir eru og landið fá- tækara undir.1) Af þessum og þvílíkum ástæðum, verður ekki hjá því komist að skerða frjálsræði einstaklingsins til þess að vera ótrygður. En þetta frjálsræði, sem er alveg samskonar og frjálsræðið til þess að vera óbólusettur, til þess að lialda börnum sínum frá kenslu, til þess að úthýsa mönnum eða til þess að láta þá afskiftalausa, þó þeir sjeu í lifsháska staddir, á engan rjett á sjer. Það er að eins afleið- ing af skipulagsleysi, sem hverfur með þvi, alveg eins og illgresið, þegar land er tekið til ræktunar. Loks er sá stóri kostur á tryggingarskipulaginu, að þvi er framkvæmdina snertir, að inn í það má hæglega fella stjrrkt- arfyrirkomulag, þar sem það er komið á, eöa á fult eins vel við. Auk þess er auðvelt að bæta við það, svo mögulegt er að byrja tryggingarskipulagið á tiltölulega takmörkuðu sviði, en vitanlega kemur það að því fyllra gagni, því betur sem þvi er beilt. Þegar hugsað er til þess að koma tryggingarmálefnum hjer á landi á betri rekspöl, virðist það liggja næst að hafa fyrir augum — sem form, er ráðstafanirnar gætu fallið inn 1) Sbr. Gonrad: Politische Öekonomie, 2. Bd. bls. 368—9: . . . Es miissen hier aber auch weit grössere Reserven aufgespeichert werden, svelche der laufenden volkswirtschaftlichen Anlage enlzogen werden. Auch dies ist eine Last fiir die Volkswirtschaft, die in einem jedem Lande schwer empfunden wird und um so drúckender ist, je iirmer das Land ist.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.