Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Side 68

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Side 68
64 verið alveg hliðstæð skammvinnum sjúkdómi, önnur lang- varandi veildndum og stigbreylingin getur náð alt til þess, að um algerða, varanlega örorku sje að ræða, hliðstæða ellibilun. Ellitryggingar taka ekki síður til mjög mismunandi ástands. Lög ýmsra þjóða greinir allmjög á um lágmarksaldur til ellistyrktar, og ekki síður getur ellibilunin verið á barðla mis- munandi stigi. Loks er ellitrjfggingin mjög háð því, hvernig binum öðrum tryggingargreinum er skipað, sjerstaklega ör- yrkjalryggingunni. Því betur sem frá henni er gengið, því hærri getur almenni ellistyrksaldurinn verið. Þetta er nægilegt til þess að sýna, að því fer fjarri, að skörp takmörk sjeu milli sjúkra- slysa- öryrkja- og ellitrj'gg- inga, að innan þessara aðaltegunda getur jafn óliku verið til að dreifa eins og milli flokkanna og að engin áhættutegund verður með rjettu útilokuð frá almannatryggingu, þó henni liggi nærri að falla milli deilda, svo sem »kronisk« veik- indi o. þvil. Frá tryggingarsjónarmiði eiga allir þessir aðal- og auka- flokkar sammerkt í því, að hinn trygði er frá vinnu um lengri eða skemmri tíma og ófær, eða miður fær, til þess að sjá fyrir sjer og sínum. Nánari flokkun fer svo eftir því, hverjar ráðstafanir eru mögulegar eða líkiegar til þess að af- stýra skaðanum eða hæta úr honum, sje hann skeður. Að miklu leyti mundi sú flokkun einatt vera háð því, hverja orsök væri um að ræða — veikindi, elli eða annað — en þvi fer fjarri, að svo væri altaf. Ráðstafanir til þess að bæta örorku yrðu t. d. með sama sniðinu, hvort sem orsökin væri elli, slys eða veikindi. Menn eru nokkurn veginn orðnir sammála um það, að áhættugreinar þær, er nefndar voru hjer að framan, sjeu hæfar til almannatrj'ggingar, enda vofa þessar hæltur yfir hverri einustu manneskju. Vafaatriðin um það, hve langt megi beita skyldutryggingum, snerta aðallega tvennskonar svæði. Að einu leytinu, hvort og að hve miklu leyti rjett- mætt sje og mögulegl að fella tryggingu alvinnulausra inn í almannatryggingu, að hinu leytinu, hversu haga skuli framfærslu vandamanna hins trj’gða, þeirra er eiga fram- færi sitt undir afkomu hans.1) Bæði þessi vandaatriði virð- 1) General problems of social insurance, gefin út af International labour oífice, Geneva 1925. § 5. Survivors insurance, bls. 99.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.