Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 84

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 84
80 atvinnurekstur hefir skaðleg áhrif á heilsu, eða veldur ör- orku, án'slysa, fyrir aldur fram, er það nauðsynlegt, að at- vinnureksturinn greiði iðgjald, er þessari sjerstöku áhættu svarar. — Mælikvarðinn i þessu efni yrði yfirleitt sá, að at- vinnurekstur skuli greiða iðgjöld, er svari til þeirrar sjertöku áhættu, er honuni er samfara. En yfirleitt, um almenn trygg- ingargjöld, hefði almannalrygging lilla hvöt til þess að halda sjer að atvinnurekendum. — Það er alt annað mál, að trygg- ingin gæti gengið að launum þess manns, er ekki greiddi sitt tryggingargjald með öðru móti. Hinir trygðu greiða nú sem stendur það sem ávantar, þannig að skaðinn skellur þar sem hann hittir. Hverju þetta nemur fyrir alla landsmenn samtals, er ekki hægt að áætla með neinni vissu. Það eina vissa er að þeir bera skaðann, hverju sem hann svo nemur. — Eðlilegasta sldpulagið í þessu efni, að minsta kosti fyrst í stað, væri þá það, að hafa fastákveðið gjald fyrir hvern trygðan mann, þó þannig að þetta gjald mælti hækka eða lækka, innan vissra takmarka, með sam- þyktum í hverju tryggingarbjeraði. Yrði þessu að fylgja, að gjöldin gengi fyrst og fremst til kostnaðar innan hjeraðs. Með því móti yrði fyrirkomulagið liðlegra og ljeti opið svig- rúm fyrir nokkurt sjálfræði hinum einstöku tryggingarhjer- uðum til handa, einnig fjárhagslega. Hvernig grundvallar- iðgjaldið væri ákvarðað, skifti þá ekki mjög miklu máli og nærri lægi, í samræmi við rikissjóðs- og hjeraða-framlagið, að ganga út frá 15 kr. árgjaldi fyrir hvern trygðan mann. Með hæfilegum ákvæðum til stuðnings um innheimlu tryggingargjaldsins, þyrfti ekki að gera ráð fyrir miklum van- höldum, en það sem þau næmu, svo og afsláttur til handa mönnum með stóra fjölskyldu, ætti að vinnast upp með gjaldi því á einhleypingum, sem nefnt var á bls. 70—71 hjer að framan. Tekjur almannatryggingarinnar yrðu eftir þessu 45 kr. á mann, auk iðgjalda fyrir sjerstakar áhæltur. Ef næg gögn væru fyrir hendi, mætti sjálfsagt komast nokkuð nær þvi, að einu leytinu hver upphæðin mætti vera, að hinu leytinu hver hún þyrfti að vera, en meira en líkur yrði þetta ekki. Yissan í þessu efni gæti ekki komið, fyr en almannatrygg- ingunni færi að vaxa fiskur um hrygg. Hversu fagurlegir út- reikningar sem fyrir hana væru lagðir, yrði hún á byrjunar- stigi um fram alt að fara varlega. Gagnið yrði þá að vísu

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.