Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1927, Síða 22
20
Magnús Jónsson dósent.
1. Fór með yfirheyrslu og viðtali yflr Jóhannesarguðspjall
eftir frumtextanum fyrra misserið, 6 stundir í viku. Var
lokið fyrir jól.
2. Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir Rómverjabrjefið,
vandlega eftir islenska textanum, framan af síðara misseri
6 stundir i viku og síðan
3. Yfir L, 2. og 3. Jóhannesarbrjef og Fílemonsbrjefið 6
stundir i vilcu. Var því öllu lokið snemma í mai.
4. Fór yfir kirkjusögu íslands fram að siðaskiftum, 6 stundir
í viku fyrra misserið, eftir nýjár Kristnisaga íslands eftir
dr. Jón Helgason biskup Reykjavik 1925, I. bd., notuð.
5. Kirkjusaga íslands frá siðaskiftum til vorra daga yfir-
farin með þeim hætti, að stúdentarnir fluttu fyrirlestra
um efnið í samfeldri heild, undir leiðsögu kennarans.
Islands Kirke eftir dr. Jón Helgason biskup, síðara bindi,
var lögð til grundvallar. Fór þetta fram 6 stundir í viku
i lok siðara misseris.
Aðjunkt Kristinn Ármannsson
kendi guðfræðinemum grísku, byrjendum og þeim er lengra
voru komnir í því námi, 5 stundir í viku hvorum flokki,
bæði misserin.
Læknadeildin.
Prófessor Guðmundur Hannesson.
1. Liffœrafrœði.
a) Farið yfir kerfalýsingu Broesikes 5 stundir i viku
bæði misserin.
b) Farið yfir svœðalýsingu Cornings 2 stundir í viku
bæði misserin.
c) Verklegar æfingar í líffœrafrœði bæði misserin.
2. Lifeðlis/rœði.
Farið með viðtali og yfirheyrslu 3 stundir i viku yfir
Halliburton, Handbook of Physiology.
3. Heilbrigðis/rœði 2 stundir í viku bæði misserin.