Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Blaðsíða 7
5
heilla í starfi hans. Tveir af sendikennurunum, sem störfuðu
hér síðastliðinn vetur, eru horfnir héðan, þeir Mr. A. C. Caw-
ley, sendikennari í ensku, og M. Pierre Ducrocq, sendikennari
í frönsku, en von er á mönnum í þeirra stað.
1 júnímánuði síðastliðnum var haldið hér í háskólanum
námskeið í uppeldisvísindum fyrir kennara, og stóðu að því
auk háskólans fræðslumálastjórnin og Samband ísl. barnakenn-
ara. Námskeið þetta stóð yfir um 3ja vikna tíma og var fjöl-
sótt, fjölsóttasta námskeiðið, sem haldið hefur verið hér í
háskólanum, og vona eg, að kennaramir, sem sóttu það, hafi
haft bæði gagn og ánægju af því. Um margra ára skeið hafa
verið uppi ráðagerðir og óskir um það að tengja menntun
kennara meira við háskólann en nú er, stofna þar sérstaka
kennaradeild, svo að fleiri og fleiri af kennurum landsins yrðu
menn, sem hlotið hefðu háskólamenntun. Óskir um þetta hafa
m. a. komið fram frá kennarastéttinni sjálfri. f frumv. til laga
um menntun kennara, sem milliþinganefnd sú í skólamálum,
er skipuð var 30. júní 1943, hefur borið fram, er m. a. mælt
svo fyrir, að stofnuð skuli kennaradeild við háskólann. Frum-
varp þetta var sent háskólaráði til umsagnar, og gerði það
nokkrar breytingar á því í samráði við heimspekideild. Hefur
skólamálanefndin fallizt á þessar breytingatillögur, og samkv.
frumvarpinu þannig breyttu verður að vísu eigi að svo stöddu
sérstakri háskóladeild fyrir kennaraefni komið á fót, heldur
kennslustofnun í uppeldisvísindum, sem tengd verður við heim-
spekideild. Er ráðgert, að hún taki til starfa jafnskjótt og að-
staða er fengin til æfinga og tilraunakennslu, en hlutverk stofn-
unar þessarar á að vera það að veita kennurum við barna-
skóla og skóla gagnfræðastigsins, menntaskóla og sérskóla,
menntun í uppeldisvísindum, sálarfræði og kennslufræði, auk
þess sem kennaramir í uppeldisvísindum skulu annast rann-
sóknir og leiðbeiningar í þágu uppeldismála landsins, eftir því
sem samrýmist kennslustörfum þeirra. Ætlazt er til, að bæði
stúdentar og menn, sem lokið hafa almennu kennaraprófi, eigi
rétt á að stunda nám við stofnun þessa og taka þar próf. Frum-
varp þetta kemur nú fyrir Alþingi, og nái tillögur þessar fram