Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Side 12
10
því eigum vér að stefna, að þær fái sinn sess við hliðina á
hinum klassísku bókmenntum Grikkja og Rómverja. Tungan,
sem þær eru skráðar á, er klassískt mál, og þó að því leyti
fremri öðrum klassískum málum, að það er lifandi mál enn
í dag, og oss er skylt að stuðla eftir mætti að því, að þekk-
ing annarra þjóða á timgu vorri aukist. En málið læra menn
hvergi betur en hér á landi. Ýmsir erlendir fræðimenn, er
norræn fræði stunda, hafa komið hingað til lands, og reynsl-
an hefur sýnt það, að við það að læra íslenzku hér og kynn-
ast þjóðinni og landinu, eins og það er nú, hafa þeir öðlazt
dýpri og réttari skilning á hinni fomu menningu vorri og bók-
menntum en hinir, sem aldrei hafa hingað komið. Það er mik-
ilsvert fyrir oss að stuðla að því, að sem flestir þessara manna
komi hingað, og efast ég um, að önnur landkynning reynist
oss heillaríkari en þessi. Þess vegna er það áhugamál háskól-
ans að efna til sumamámskeiða fyrir erlenda stúdenta, er
stunda norræn fræði. Sóttum vér í vetur til Alþingis um
nokkurn styrk í þessu skyni, en fjárveitinganefnd þingsins
vildi eigi sinna þeirri beiðni. Vér gerðum þetta mál ekki að
kappsmáli þá, enda voru aðrir örðugleikar á því, að nám-
skeið yrði haldið á síðastliðnu sumri. En vér höfum hafið
þessa fjárbón að nýju, og ég get þess með þakklæti, að ríkis-
stjórnin hefur tekið fjárveitingu í þessu skyni í fjárlagafrum-
varp fyrir næsta ár, og vona ég, að sú tillaga fái góðar við-
tökur hjá Alþingi, svo að hægt verði að halda hið fyrsta þess-
ara námskeiða næsta sumar.
En Island er klassískt land um fleira en tungu sína og bók-
menntir. Fróðir menn segja, að óvíða eða máske hvergi á
jörðinni sé auðveldara og lærdómsríkara að athuga ýmis fyr-
irbrigði landfræði- og jarðfræðilegs eðlis en hér á landi, og
það er nú orðið áhugamál ýmissa hinna fremstu háskóla-
kennara á Norðurlöndum í þessum fræðum að efna til náms-
ferða stúdenta hingað til lands. Meira að segja hefur komið
til orða að gera þeim að skyldu að dveljast nokkum tíma hér
á landi við athuganir, áður en þeir taka fullnaðarpróf. Ef úr
þessu verður, sem mér þykir líklegt að verði, væri mikils-