Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Side 61
59
„Getið þið afgreitt 100 tunnur af sementi fyrir miðjan sept-
„ember. Símsvar."
Skeytinu svaraði heildverzlunin þannig með símskeyti daginn eftir:
„Skeyti 14. ágúst. Bjóðum 100 tunnur sement á 18.00 kr.
„tunnan fob. Reykjavík afskipim 22. september með v/s.
„Sverri. Greiðsla í Sparisjóði S-víkur gegn afhendingu fylgi-
„bréfs.“
Þessu svaraði Jón engu. Heildverzlunin sendi þó vörurnar á þann
hátt og með þeim skilyrðum, er í skeyti hennar var greint. Jafn-
framt símtalaði forstjóri heildverzlunarinnar við Árna Jónsson,
múrarameistara í S-vík, og sagði honum, að framangreindar vörur
hefðu verið sendar og væru ætlaðar Jóni Jónssyni, en ef Jón inn-
leysti þær ekki innan viku frá þeim tíma, er skjölin bærust Spari-
sjóðnum, gæti Ámi fengið þær með sömu skilmálum og Jóni væru
ætlaðir. Ámi varð þessu feginn, þar sem hann var í hraki með
sement og hafði ekki tekizt að útvega sér það.
Þegar v/s. Sverrir kom til S-víkur þann 28. september, vom vör-
urnar affermdar þar og settar í geymslu afgreiðslumanns Eim-
skipafélags íslands h/f., en félagið hafði Sverri á leigu. Daginn eftir
sendi Sparisjóður S-víkur Jóni Jónssyni tilkynningu þess efnis, að
fylgibréfið lægi þar og yrði afhent gegn greiðslu á kr. 1800.00, en
endursent innan 8 daga, ef ekki væri greitt. Jón greiddi þó ekki,
og þegar Árni kom í sparisjóðinn þann 10. okt. með staðfest skeyti
frá heildverzluninni Þór, þar sem svo var fyrir mælt, að fylgibréfið
skyldi afhent honum gegn greiðslu, þá lét sparisjóðurinn það af
hendi við Árna gegn greiðslunni.
En þegar hann kom á afgreiðsluna, voru þar engar vömr. Hafði
Jón fengið þær afhentar þann 5. október og afhending farið fram
vegna þess, að Jón skýrði afgreiðslumanninum frá því, að fylgi-
bréfið væri ekki komið, en sér bráðlægi á vömnum. Sýndi hann
afgreiðslumanninum reikning um vörurnar, sem honum hafði ver-
ið sendur í sérstöku bréfi. Vörurnar voru merktar J. J. S-vik og sama
merki tilgreint á reikningnum.
Flutningsgjald, vátrygging, uppskipun og geymslu, samtals kr.
220.00 hafði Jón greitt.
Vegna þess að Árni varð af sementinu á þann hátt, sem að fram-
an er lýst, varð hann síðbúnari með að ljúka steypu á húsi, er
hann hafði tekið að sér í ákvæðisvinnu, og varð af þeim ástæðum
að greiða 100 kr. dagsektir í 10 daga, eða samtals kr. 1000.00.
Staða afgreiðslumannsins var sú, að hann var ráðinn gegn ákveð-
inni þóknun fyrir innheimtu, en uppskipun og geymslu annaðist
hann fyrir eigin reikning. Auglýst var á skrifstofu hans og vöm-